„Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 19. janúar 2026 14:06 Líf Magneudóttir oddviti VG í Reykjavík segir að ekki hafi verið formlega fallist á að Sanna Magdalena Mörtudóttir hjá Vori til vinstri myndi leiða sameiginlegan lista. Steinunn Rögnvaldsdóttir varaformaður stjórnar VGR segir að það hafi verið forsenda fyrir samstarfi. Dapurlegt sé ef skilningur Lífar sé annar. Vísir Varaformaður stjórnar Vinstri grænna í Reykjavík segir dapurlegt að Líf Magneudóttir núverandi oddviti haldi því fram að ekki hafi verið ákveðið á félagsfundi að Vor til vinstri myndi leiða sameiginlegt framboð. Það hafi verið niðurstaða fundarins í gær. Sanna Magdalena Mörtudóttir segir að það hafi verið sinn skilningur.
VG í Reykjavík tilkynnti í gær að hreyfingin áformi að mynda bandalag með Vori til vinstri í borgarstjórnarkosningunum í vor. Í tilkynningunni kom fram að Sanna Magdalena Mörtudóttir frá Vori til vinstri muni leiða framboðið en fulltrúar VG skipa annað, þriðja og sjötta sæti listans. Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna í borginni sagði hins vegar í samtali við Vísi í gær að það hefði ekki verið samþykkt á fundi félagsins að Sanna Magdalena myndi leiða sameiginlegan lista. Vísaði hún til formlegrar tillögu stjórnarinnar þar sem nafn Sönnu kemur ekki fram. Ekki náðist í Líf fyrir hádegisfréttir. Skýrt að “Vor til vinstri myndi leiða„ Steinunn Rögnvaldsdóttir varaformaður í stjórn VG í Reykjavík segir hins vegar skýrt að niðurstaðan fundarins hafi verið þessi. „Á fundi félagsins í gær fórum við yfir stöðuna sem hefur teiknast upp í viðræðum okkar við Vor til vinstri. Það sem við kynntum var að við hefðum náð samkomulagi um að við myndum leggja fram tillögu fyrir fundinn um að bjóða fram sameiginlega og að skipting efstu sæta væri þannig að Vor til vinstri myndi leiða," segir Steinunn. Aðspurð um hvort það hafi verið lagt fyrir fundinn að Sanna Magdalena Mörtudóttur myndi leiða listann svarar Steinunn: „Það lá fyrir í forsendum fundarins að Vor til vinstri myndi leiða listann. Það er forsendan sem við höfum náð samkomulagi um. Það stendur að Vor til vinstri leiði en það vita allir að Sanna Magdalena er þeirra leiðtogi og mikil sátt um að hún leiði þetta framboð,“ segir Steinunn. Enginn ágreiningur á fundinum Líf Magneudóttir hefur bent á að þetta hafi ekki komið fram í formlegri tillögu á fundinum. Steinunn segir að umræður um málið hafi farið fram þar sem það hafi verið alveg skýrt. „Fundurinn ræddi um það samkomulag sem náðist við Vor til vinstri um að sá flokkur myndi leiða listann. Um það var enginn ágreiningur á fundinum sem samþykkti tillögu okkar með nánast öllum greiddum atkvæðum. Ég hef heyrt í mörgum félögum eftir fundinn sem eru á einu máli um að fundurinn hafi verið skýr með það að samkomulagið væri að Vor til vinstri myndi leiða sameiginlegan lista. Endilegar listi fyrir framboðið, þ.e. þegar VGR hefur valið sína félaga í forvali á listann, verður svo lagður fyrir félagsfund til samþykktar. Við í VGR erum mjög spennt fyrir samstarfinu,“ segir Steinunn. Dapurlegt ef skilningurinn sé annar Steinunn segir að enginn ágreiningur hafi verið um það á fundinum í gær og dapurlegt ef skilningur Lífar Magneudóttur sé annar. „Mér finnst það dapurt. Mér finnst það dapurlegt því þetta er rosalega stórt skref fyrir vinstrið að vinna saman. Það á sér framtíð ef það vinnur saman í þágu borgarbúa. Mér finnst dapurt að það sé ekki fókusinn. Það er dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar,“ segir Steinunn. Sanna á sama máli Sanna Magdalena Mörtudóttir sem fer fyrir lista Vors til vinstri segir það hafa verið skilningur sinn eftir fundinn í VGR og komið fram í tilkynningu frá framboðinu að hún taki fyrsta sætið á sameiginlegum lista. „Minn skilningur er að VGR hafi fallist á þetta í heild sinni út frá þeirri yfirlýsingu sem kom fram í gærkvöldi á samfélagsmiðlum. Núna þurfum við að vinna úr þeim flækjum sem hafa komið upp svo við séum á sömu blaðsíðu,“ segir Sanna
Vinstri græn Vor til vinstri Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Erlent Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Innlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Innlent Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Innlent Fleiri fréttir Með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Leituðu skjóls í Hreysinu Bein útsending: Landssamráðsfundur gegn ofbeldi „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Hrunvarnir við Holtsnúp verði tilbúnar í ágúst Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Sjá meira