Framtíð barna okkar krefst meiri festu en fyrirsagna Kristín Thoroddsen skrifar 19. janúar 2026 09:47 Undanfarna daga hefur umræðan um grunnskólann verið sundurlaus, upplýsingar óskýrar og hlutverk hans að nokkru leyti óljóst. Leiðir á borð við „Finnsku leiðina“ og „Vestmannaeyjaleiðina,“ með þróunarverkefnið Kveikjum neistann, eru dregnar fram eins og töfralausninina sé einfaldlega að finna þar. Slík nálgun gefur til kynna að með einum aðgerðapakka megi leysa öll vandamál grunnskólans. Verkefni og áskoranir grunnskólans eru þó mun flóknari en svo að hægt sé að leysa þau með einu pennastriki eða skyndilausnum. Slíkar lausnir hafa aldrei skilað varanlegum árangri og tilraunastarfsemi í skólakerfinu ætti að forðast. Breytingar sem snerta framtíð grunnskólabarna krefjast vandaðrar og ítarlegrar umræðu. Gerðar eru miklar kröfur til kennara og annars starfsfólks, og sömu kröfur ætti að gera til æðstu stjórnenda menntakerfisins. Ég fagna umræðunni, en hún verður að vera málefnaleg og laus við sleggjudóma og sökudólgaleit. Í slíkri umræðu tapa allir, ekki síst nemendurnir. Framtíð barna okkar mótast af ákvörðunum dagsins í dag og ábyrgð okkar er því mikil. Hlutverk grunnskóla, er hann kominn út fyrir efnið? Það þarf vart að fara yfir hvert hlutverk grunnskólans er. Hann á að tryggja öllum börnum og ungmennum á aldrinum 6–16 ára jafnan aðgang að námi og sinna kennslu samkvæmt aðalnámsskrá. Hugtök á borð við inngildingu, samþættingu, farsæld og fjölþættur vandi voru vart til fyrir fáeinum árum, en starfsemi grunnskóla hefur á skömmum tíma tekið miklum breytingum. Kröfur til skóla eru breyttar og hlutverk kennara orðið mun flóknara en áður, oft langt út fyrir hefðbundið fagsvið þeirra. Verkefni grunnskólans eru fjölbreytt, en spyrja má hvort hann hafi fengið flóknari og umfangsmeiri verkefni en raunhæft er að leysa innan veggja skólans. Hefur hlutverk hans færst frá því að vera eingöngu menntastofnun yfir í að vera að hluta til heilbrigðisstofnun? Mikilvægt er að horfast í augu við þá staðreynd að grunnskólinn er fyrst og fremst menntastofnun, ekki heilbrigðisstofnun. Verkefni sem ættu heima innan heilbrigðiskerfisins hafa í auknum mæli hafa flust inn í skólana, meðal annars vegna álags, manneklu og langra biðlista. Börn bíða allt of lengi eftir greining eða meðferð vegna andlegs vanda, kvíða, þunglyndi og hegðunarvanda. Afleiðingin er sú að kennarar og skólastjórnendur standa frammi fyrir verkefnum sem þeir hafa hvorki menntun né úrræði til að sinna. Þetta er hvorki sanngjarnt gagnvart starfsfólki skólanna né nemendum. Hver er hinn raunveru vandi? Í allt of langan tíma hefur hver bent á annan, á meðan hlusta og bíða nemendur með þá hugmynd í kollinum að þau séu í gagnslausum grunnskóla, drengir fara brátt að trúa því að þeir sé slakari en stúlkur og kennarar efast um ágæti sitt. En hvað er hið raunverulega vandamál? Hvenær varð verkefnið að mennta börn að vandamáli? Var það þegar eitt leyfisbréf var samþykkt eða þegar kennaranámið var lengt, þegar skóli án aðgreiningar var samþykktur, þegar flóttafólki og hælisleytendum fór að fjölga? Þegar símar ruddust inn í kennslustofuna eða spjaldtölvur tóku að einhverju leiti yfir og námsgagnastofnun hægði á útgáfu kennslubóka? Ábyrgð sveitarstjórnarmanna er mikil og hana tek ég alvarlega. Samfélag okkar hefur breyst mikið með sífellt meiri hraða, sem skapar óreiðu og bitnar á festu og markmiðum. Samkeppni er um athygli barnanna og erfitt getur verið fyrir þau að finna taktinn. Hugsum í lausnum! Foreldrar bera ríka ábyrgð á uppeldi barna sinna og skólinn getur ekki og á ekki að leysa þann þátt af hendi einn og sér. Samstarf heimila og skóla þarf að vera virkt, heiðarlegt og byggt á gagnkvæmri virðingu. Skólinn getur stutt við foreldrahlutverkið en ekki komið í stað þess. Þegar væntingar eru óljósar eða ósanngjarnar verður niðurstaðan oft sú að börnin tapa. Agi er ekki úrelt hugtak heldur grundvöllur öryggis, náms og vellíðanar. Skýr mörk, reglur og afleiðingar eru nauðsynlegar í skólastarfi, ekki sem refsing heldur sem leið til að skapa ramma þar sem allir fá tækifæri til að blómstra. Þegar agi er veikur verður kennsla erfiðari og námsumhverfið ótryggt, bæði fyrir nemendur og kennara. Vandi grunnskólans einskorðast ekki við eitt atriði né einn hóp. Hann er margþættur og kallar á samstillt átak allra þeirra sem koma að menntun barna. Lausnir þurfa að byggja á raunsæi, fagmennsku og langtímahugsun en ekki skyndilausnum eða pólitískum slagorðum.Skólasamfélagið þarf að vinna saman að skýrum markmiðum. Samstarf ríkis, sveitarfélaga, skólastjórnenda og kennara er forsenda þess að breytingar skili árangri. Skortur á sameiginlegri stefnu og stöðugum ramma skapar óöryggi og rugling, bæði innan skólanna og í samfélaginu. Börn þurfa stöðugleika og fyrirsjáanleika til að dafna. Kennarar eru fagfólk og þurfa raunverulegt svigrúm til að sinna starfi sínu. Ábyrgð án valds er uppskrift að kulnun og brotthvarfi úr stéttinni. Ef við gerum kröfur til kennara verðum við jafnframt að treysta þeim, styðja þá og hlusta á þeirra faglega mat. Styrkur grunnskólans liggur fyrst og fremst í hæfum og öflugum kennurum. Grunnskólinn er ekki vandamálið, hann er hluti af lausninni. En til þess að hann geti sinnt hlutverki sínu þarf skýrari sýn, minni óreiðu og meiri ábyrgð á öllum stjórnsýslustigum. Börnin okkar eiga skilið menntakerfi sem byggir á festu, fagmennsku og samvinnu. Framtíð þeirra mótast af ákvörðunum sem við tökum í dag og sú ábyrgð hvílir á okkur öllum. Höfundur er bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Hafnarfirði og formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar