„Við erum á öldunni okkar núna og erum að njóta þess“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 15. janúar 2026 20:16 Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, var stoltur af leikmönnunum sínum að leik loknum. Anton Brink ÍBV tyllti sér á topp Olís-deildarinnar eftir sigur á ÍR-ingum 26-29 í Skógarseli í kvöld. Magnús Stefánsson, þjálfari liðsins, var sáttur með framlag leikmanna í kvöld gegn sterku liði ÍR. „
Virkilega góður sigur en á sama tíma virkilega erfiður sigur á móti vel skipulögðu liði ÍR. Þeirra einkenni er góður varnarleikur og keyra hratt upp völlinn og það eru fá lið í deildinni sem að gera þetta jafn vel og ÍR liðið. Við þurftum því að hafa virkilega mikið fyrir þessu hér í dag,“ sagði Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, eftir sjöunda sigur liðsins í röð í deildinni. „Stelpurnar gerðu það sem þurfti til þess að sækja þennan sigur og ég er ofboðslega ánægður með nálgunina hjá þeim inn í þennan leik. Mér fannst þær ekki bogna eða brotna, fókusinn þeirra var á réttum stað.“ Góð stemning í hópnum er sýnileg og ljóst að það hafi áhrif á frammistöðu leikmanna. „Fyrst og síðast eru það þessir leikmenn og þessar stelpur. Þær eru að leggja ofboðslega mikla vinnu á sig á hverjum einasta degi og í hverri einustu viku. Þær eru að njóta þess að spila handbolta og stemningin í hópnum er frábær, skiptir ekki máli hvort það sé elsti leikmaðurinn eða yngsti. Það er alltaf sama grínið í gangi í kringum æfingar og í kringum þessar ferðir.“ „Við erum á öldunni okkar núna og erum að njóta þess á meðan það er svoleiðis.“ ÍBV hafnaði í 6. sæti á síðustu leiktíð en liðið hefur nú unnið sjö leiki í röð og eru á þvílíkri siglingu. Aðspurður hvort markmiðið væri að vinna deildina að þá var svarið einfalt. „Algjörlega, það væri skrítið að segja eitthvað annað vegna þess að við erum í fyrsta sæti ásamt Val. Valur er náttúrulega með frábært lið og tvo menn í hverri einustu stöðu. Svarið við spurningunni er þó einfalt já að sjálfsögðu ætlum við að halda okkur þarna eins lengi og við getum.“
Olís-deild kvenna ÍBV Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Sjá meira