Segir Gumma Tóta á leið heim úr atvinnumennsku Aron Guðmundsson skrifar 13. janúar 2026 17:59 Guðmundur Þórarinsson er á leið heim OFI Crete Fótboltamaðurinn Guðmundur Þórarinsson er á heimleið eftir fimmtán ár erlendis í atvinnumennsku.
Þessu heldur Rikki G, íþróttalýsandi og umsjónarmaður Þungavigtarinnar, fram í færslu á samfélagsmiðlinum X í dag. Segir hann að Guðmundur og félagslið hans Noah FC í Armeníu hafi komist að samkomulagi um að rifta samningi sín á milli að frumkvæði Guðmundar sem vilji flytja heim til Íslands með fjölskyldu sína. Gummi Tóta og FC Noah hafa komist að samkomulagi að enda samninginn að frumkvæði Guðmundar sem vill flytja heim með fjölskylduna sína til frambúðar. Gummi Tóta snýr heim eftir 12 góð ár samfleytt í atvinnumennsku þar sem hann vann fjölda titla.GT myndi styrkja öll lið í Bestu.— Rikki G (@RikkiGje) January 13, 2026 Guðmundur, lék síðast hér á landi árið 2012 með liði ÍBV í efstu deild en fram að tíma sínum í Vestmannaeyjum hafði hann aðeins spilað með uppeldisfélagi sínu, Selfoss. Alls hefur Guðmundur leikið 59 leiki í efstu deild hér á landi en í atvinnumennskunni hefur hann spilað með liðum í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Bandaríkjunum, Grikklandi og nú síðast í Armeníu. Guðmundur varð tvöfaldur meistari með Noah FC á síðasta tímabili í Armeníu en þar áður hafði hann unnið MLS bikarinn með New York City árið 2021 og árið 2016 varð hann tvöfaldur meistari með Rosenborg í Noregi. Þá á hann að baki fimmtán A-landsleiki fyrir Íslands hönd. „Guðmundur Þórarinsson (GT) myndi styrkja öll lið í Bestu deildinni,“ segir Rikki G í færslu sinni.
Íslendingar erlendis Íslenski boltinn Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Víkingur - ÍA | Íslandsmeistararnir fá Skagamenn í heimsókn Íslenski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Fleiri fréttir „Líf markmannsins að vera tilbúinn alltaf“ Víkingur - ÍA | Íslandsmeistararnir fá Skagamenn í heimsókn Breiðablik - Keflavík | Bikarmeistararnir fá erfiðan heimaleik Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Ísak skoraði glæsimark í sigri Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Jón Dagur og félagar enn með fullt hús Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Sjá meira