Hulda til Basalt arkitekta Atli Ísleifsson skrifar 13. janúar 2026 12:50 Hulda Hallgrímsdóttir. Basalt arkitektar hafa ráðið Huldu Hallgrímsdóttur í nýja stöðu stefnu- og viðskiptaþróunarstjóra.
Í tilkynningu segir að með ráðningunni sé stigið markvisst skref í áframhaldandi uppbyggingu stofunnar og alþjóðlega sókn hennar. Basalt arkitektar voru stofnaðir árið 2009 og hafa fest sig í sessi sem ein af fremstu arkitektastofum landsins. Stofan er þekkt fyrir metnaðarfulla og heildstæða nálgun í arkitektúr þar sem samspil manns, umhverfis og staðar er í forgrunni. Á undanförnum árum hefur Basalt komið að fjölmörgum umfangsmiklum verkefnum, þar á meðal Bláa Lóninu, Silica Hóteli, GeoSea, Lava Centre, Vök Baths og Skógarböðunum, og hlotið bæði innlendar og alþjóðlegar viðurkenningar fyrir störf sín. Hjá Basalt starfa 25 manns og eigendur fyrirtækisins eru fjórir starfandi arkitektar. Hulda kemur til Basalt með víðtæka reynslu á sviði stefnumótunar, viðskiptaþróunar og samskipta, bæði úr opinbera geiranum og alþjóðlegu umhverfi. Hún kemur úr Ráðhúsi Reykjavíkur, þar sem hún starfaði sem teymisstjóri á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og sinnti þar stefnumótun, atvinnu- og borgarþróun í nánu samstarfi við stjórnendur borgarinnar og fjölbreytta hagaðila. Þar áður starfaði Hulda við viðskiptaþróun og samskipti hjá Bjarke Ingels Group (BIG) og arkitektastofunni Third Nature, auk þess sem hún hefur starfað hjá Dansk Arkitektur Center við miðlun og kynningu arkitektúrs. Hún býr því yfir yfirgripsmikilli reynslu af því að starfa á mörkum arkitektúrs, stefnumótunar, stjórnsýslu og alþjóðlegra samskipta. Hulda er menntuð í stjórnun skapandi fyrirtækja og markaðs- og viðskiptasamskiptum frá Copenhagen Business School og hefur sterkan skilning á því hvernig skapandi fyrirtæki byggja upp sjálfbæra starfsemi, skýra stefnu og sterka ímynd til langs tíma,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira