Aðeins fimmti svarti Englendingurinn í sögunni Valur Páll Eiríksson skrifar 7. janúar 2026 07:02 Rosenior fer í fámennan hóp svartra þjálfara sem stýrt hafa liði í ensku úrvalsdeildinni. Mike Hewitt/Getty Images Liam Rosenior, nýr þjálfari Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, fer í fámennan hóp svartra þjálfara í 34 ára sögu deildarinnar. Hann er aðeins tíundi svarti maðurinn sem stýrir liði og sá fimmti frá Bretlandi.
Löngum hefur verið rætt um fá tækifæri svartra til þjálfunar í enska fótboltanum, á öllum stigum. Nuno Espirito Santo, þjálfari West Ham, var sá eini í ensku úrvalsdeildinni áður en Rosenior bættist við í dag. Patrick Vieira og Vincent Kompany eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt stöðuna og lagði Vieira sig fram við að gefa svörtum þjálfurum tækifæri á að koma í starfsreynslu meðan hann þjálfaði Crystal Palace. Þar á meðal fyrrum liðsfélaga hans Sol Campbell. Sá hefur þó lítt komist áfram með sinn þjálfaraferil og ekki starfað við slíkt síðan hann starfaði með Hermanni Hreiðarssyni hjá Southend 2019 til 2020. Kompany segir tækifæri af skornum skammti og ávallt séu sömu hlutverk í boði fyrir svarta leikmenn þegar skór þeirra fara upp í hillu. Um er að ræða viðfangsefni sem skiptir Rosenior sjálfan máli. Faðir hans, Leroy Rosenior, sjálfur fyrrum leikmaður og þjálfari, var heiðraður af breska ríkinu árið 2019 fyrir starf sitt gegn kynþáttamismunun með MBE-orðu. Tæplega helmingur leikmanna í ensku úrvalsdeildinni er dökkur á hörund en aðeins um 4 prósent þjálfara (þegar þeir í starfsliði aðalþjálfara eru teknir með). Ruud Gullit varð á tíunda áratugnum fyrsti svarti þjálfarinn í ensku úrvalsdeildinni þegar hann var spilandi þjálfari Chelsea árið 1995. Hann tók síðar við liði Newcastle. Paul Ince var fyrsti svarti Englendingurinn til að sinna starfi aðalþjálfara þegar hann tók við Blackburn árið 2008. Chris Hughton (Newcastle, Norwich og Brighton), Chris Ramsey (QPR) og Darren Moore (WBA) eru auk Ince hinir svörtu Englendingarnir sem hafa stýrt liði í deildinni áður en Rosenior varð sá fimmti, er hann tók við starfi Chelsea í dag. Hayden Mullins (Watford) og Terry Connor (Wolves) hafa þá verið tímabundnir stjórar liða í deildinni en ekki ráðnir varanlega. Belginn Vincent Kompany stýrði Burnley í eitt tímabil í deildinni og þá var Frakkinn Jean Tigana þjálfari Fulham þegar liðið komst upp í deildina snemma á þessari öld. Áður hafa verið nefndir þeir Patrick Vieira og Nuno Espirito Santo. Sá síðarnefndi stýrir West Ham United gegn fyrrum félögum í Nottingham Forest í kvöld. Sá leikur verður í beinni á Sýn Sport.
Enski boltinn Kynþáttafordómar Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira