Markmiðin sem skipta máli Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar 31. desember 2025 08:01 Áramótin eru að mínu mati einn besti tími ársins. Nýtt upphaf, tækifæri til að fara yfir markmiðin sín og gildi og leggja grunninn að nýjum sigrum á nýju ári. Það sem skiptir mig mestu máli í lífinu er að skapa aðstæður fyrir börnin mín þrjú til að blómstra og ná árangri. Að þau takist á við krefjandi verkefni í öruggu umhverfi þar sem þau fá að finna til sín og vaxa. Ég vil að þau tileinki sér góð samskipti, séu virk félagslega og að þau geri sér grein fyrir því að þau eru hluti af samfélagi sem þarf að rækta og hlúa að. Ég vil að þau búi við góða heilsu, stundi fjölbreyttar íþróttir og útiveru. Að þau rækti heilbrigða sál í hraustum líkama. Ég er meðvitaður um að ég sem foreldri er mikilvægasti aðilinn í lífi barnanna minna til að stuðla að jákvæðum þroska þeirra en ég er líka meðvitaður um að ég hef ekki fulla stjórn á aðstæðum. Til þess að ég nái markmiðum mínum þarf ég að eiga í góðu samstarfi við kennara, þjálfara, frístundastarfsfólk og foreldra vina barnanna minna. Við erum öll saman í því verkefni að ala upp börnin mín og skapa þeim góða framtíð. Ég hef líka þurft að reiða mig á öflugt heilbrigðiskerfi, lækna, talmeinafræðinga, sálfræðinga og geðlækna til að styðja við börnin mín. Þar kynntist ég annars vegar mikilvægi þess að hafa öflugt og aðgengilegt heilbrigðiskerfi en á sama tíma hvað biðlistar eftir greiningum og þjónustu eru allt of langir. Markmið mitt fyrir nýtt ár er að halda áfram að hlúa að börnunum mínum. Ég ætla að forgangsraða tíma mínum betur til að verja tíma með þeim því ég veit að samvera barna með foreldrum er það sem hefur mest jákvæð áhrif á líðan og þroska barnanna okkar. Ég ætla að ýta undir að þau rækti félagsleg tengsl og taki virkan þátt í samfélaginu okkar. Ég ætla að halda áfram að styðja þau í að taka þátt í íþróttastarfi og útiveru. Síðast en ekki síst ætla ég að vera til staðar þegar fjölbreyttar áskoranir lífsins banka upp á. Ég ætla einnig að nýta krafta mína á Alþingi Íslendinga til að stuðla að jákvæðu og sterku samfélagi fyrir börnin mín og öll önnur börn á Íslandi til að alast upp, vaxa og þroskast. Á fyrsta ári mínu á þingi hef ég þegar stutt ríkisstjórn Íslands meðal annars við að: Efla fæðingarorlofskerfið og tryggja að allir foreldrar fái aukin réttindi óháð fæðingardegi barns Efla grunnskólakerfið með því að lögfesta nýjan samræmdan matsferil sem mun styðja við foreldra og skólakerfið til að fylgjast með og stuðla að bættum námsárangri barna Auka fjármagn til geðheilsumiðstöðvar barna til að fjölga stöðugildum í greiningarteymum og stytta biðlista eftir greiningu Ríkið taki yfir málaflokk barna með fjölþættan vanda til að bæta þjónustu og veita sveitarfélögunum aukið svigrúm til að fjárfesta í skólunum, félagsmiðstöðvum og íþróttastarfi Ráðast í markvisst átak við að efla meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni en nýtt meðferðarheimili fyrir drengi mun opna strax í janúar og standa endurbætur á Stuðlum yfir samhliða Tvöfalda framlög til æskulýðssjóðs í fjárlögum næsta árs en sjóðurinn hefur það markmið að styðja börn og ungmenni við að skipuleggja og taka þátt í tómstunda- og forvarnarstarfi. Næstum tvöfalda framlög til ferðasjóðs ÍSÍ en markmið þess sjóðs er að niðurgreiða ferðakostnað barna í keppnisferðalögum innanlands og þannig stuðlað að jafnara aðgengi barna að íþróttastarfi Ríkisstjórnin hefur einnig verið meðvituð um mikilvægi þess að styðja við foreldra og hversu mikil áhrif fátækt foreldra hefur á lífsgæði barna. Því hefur það verið forgangsmál ríkisstjórnarinnar að styðja betur við þau sem standa verst í samfélaginu. Mennta- og barnamálaráðherra hefur sett af stað vinnu við fyrstu aðgerðaáætlun Íslands gegn fátækt barna en 10% barna búa við fátækt á Íslandi. Á nýju ári mun ég halda áfram að styðja við ríkisstjórnina í fjölmörgum góðum málum sem snúa að því markmiði að bæta líf barna og ungmenna á Íslandi. Spenntastur er ég sjálfur fyrir gerð fyrstu ungmennastefnu Íslands en ég hef tekið að mér að leiða þá vinnu fyrir hönd mennta- og barnamálaráðherra. Markmiðið með fyrstu ungmennastefnu Íslands er að taka saman heildstæða stefnu um hvernig við sem samfélag viljum skapa aðstæður og styðja við börnin okkar þegar þau verða unglingar og þangað til að þau verða öflugir fullorðnir einstaklingar sem standa á eigin fótum, taka þátt í að byggja upp samfélagið okkar og ala upp næstu kynslóðir. Ég óska öllum landsmönnum gleðilegs nýs árs og vil hvetja ykkur til að setja ykkur markmið sem skipta máli, markmið sem snúa að því hvernig við getum bæði eflt okkur sem einstaklinga en líka hvernig við getum látið gott af okkur leiða til að byggja saman upp sterkt og öflugt samfélag á Íslandi. Höfunduer er þingsflokksformaður Samfylkingarinnar og foreldri Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Samfylkingin Guðmundur Ari Sigurjónsson Mest lesið Mannauður í mjólkinni Ari Edwald og Inga Guðrún Birgisdóttir Skoðun Tvöfeldni Þorsteinn Pálsson Fastir pennar Ástarsögur Sigurður Árni Þórðarson Skoðun Nýr veruleiki Hörður Ægisson Skoðun Strákurinn í fiskvinnslunni Lára G. Sigurðardóttir Bakþankar Á eftir áætlun Þorsteinn Pálsson Fastir pennar Ertu enn?? Óttar Guðmundsson Bakþankar Lýðræði allra Davíð Stefánsson Skoðun Nýtum færið Skoðun Hamskipti húsa Skoðun Skoðun Skoðun Uppbygging á Blikastöðum Anna Sigríður Guðnadóttir skrifar Skoðun Traust fjarskipti eru þjóðaröryggismál Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Að vilja ekki borga fyrir félagslega þjónustu Birgir Örn Guðjónsson skrifar Skoðun Stóru málin: Börn í leikskólum, ekki á biðlistum Aðalsteinn Leifsson skrifar Skoðun Ísland einn jaðar á einum stað? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ný rannsókn með stórfrétt? Björn Ólafsson skrifar Skoðun Eru kórallar á leið í sögubækurnar? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Formannsslagur FF – breytingar, samfella og spurningin um forgangsröðun Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Frjálshyggja með fyrirvara Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Apar í fæðingarorlofi Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Hvaða eðli? Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Við þurfum Dóru Björt í borgarstjórn Íris Stefanía Skúladóttir skrifar Skoðun Samfylking til framtíðar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir,Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Steinunni í borgarstjórn Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar Skoðun Drengirnir á matseðlinum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ó borg, mín borg Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Villtur lax má ekki vera fórnarkostnaður Dagur Fannar Ólafsson skrifar Skoðun Ísland á krossgötum: Raunsæi eða tálsýn? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gervigreindin er risi á brauðfótum: Hve tæpt stöndum við í raun? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Fjárfesting í vatni er fjárfesting í framtíðinni Jón Pétur Wilke Gunnarsson skrifar Skoðun Lýðræðisveisla Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mótmæli bænda í ESB náðu eyrum þingsins í Strassborg Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Borgin sem við byggjum er borg framtíðarinnar Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Um tvo frídaga að vetri: Annan nýjan, hinn eldri Guðmundur D. Haraldsson skrifar Skoðun Viðhaldsstjórnun Sveinn V. Ólafsson skrifar Skoðun Yfir 250 milljarðar út í loftið Lárus Bl. Sigurðsson skrifar Skoðun Inga Sæland Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Afnám lagaskyldu til jafnlaunavottunar er gott - en gullhúðað Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Happafengur í Reykjavík Hjálmar Sveinsson skrifar Skoðun Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum? Runólfur Ólafsson,Breki Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Formannsslagur FF – breytingar, samfella og spurningin um forgangsröðun Bogi Ragnarsson skrifar
Skoðun Gervigreindin er risi á brauðfótum: Hve tæpt stöndum við í raun? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar