Spilar áfram með Messi í Miami Valur Páll Eiríksson skrifar 17. desember 2025 23:32 Suárez mun spila í það minnsta eitt ár í viðbót með Miamiliðum. Simon Bruty/Anychance/Getty Images Úrúgvæinn Luis Suárez framlengdi í dag samning sinn við MLS-meistara Inter Miami í Bandaríkjunum um eitt ár.
Suárez verður 39 ára í næsta mánuði en virðist ekki á þeim buxunum að ljúka ferlinum enn um sinn. Hann skoraði 17 mörk og lagði upp 17 í 50 leikjum fyrir Inter Miami í öllum keppnum á nýliðinni leiktíð þar sem félagið varð MLS-meistari í fyrsta sinn. Það hrökklaðist úr liðinu eftir titilfögnuðinn þar sem Spánverjarnir Sergio Busquets og Jordi Alba hættu báðir knattspyrnuiðkun. Liðið fékk hins vegar annan Spánverja, Sergio Reguilon, til að fylla skarð Alba í vinstri bakvarðarstöðunni í vikunni. Argentínumaðurinn Lionel Messi framlengdi þá samning sinn við félagið í október síðastliðnum fram til ársins 2028. Það hefur gustað um Suárez í Bandaríkjunum, líkt og víðast annarsstaðar þar sem hann hefur komið við á skrautlegum ferli. Hann var dæmdur í níu leikja bann fyrir að hrækja á starfsmann Seattle Sounders í ágúst. Áður hafði hann sætt banni fyrir að bíta andstæðinga (þrisvar, með Ajax, Liverpool og Úrúgvæ) og fyrir rasísk ummæli í garð Patrice Evra árið 2011. Suárez samdi við Inter Miami árið 2024 þegar hann kom frá liði Gremio í Brasilíu. Hann hefur skorað 30 mörk í 55 deildarleikjum fyrir liðið.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira