Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Atli Ísleifsson skrifar 11. desember 2025 07:15 Búist er við því að veðrið gangi nokkuð hratt niður og verði búið síðdegis víðast hvar. Vísir/Vilhelm Austan hvassviðri eða stormur gengur nú yfir sunnan- og vestanvert landið og nú í morgunsárið taka gular viðvaranir gildi vegna þess á stórum hluta landsins.
Aðeins Austfirðirnir, Austurland að Glettingi og Norðurland eystra auk höfuðborgarsvæðisins sleppa við slíkar viðvaranir. Vindurinn verður víða allt að 23 til 25 metrar á sekúndu og sums staðar fara vindhviður staðbundið yfir 35 metra á sekúndu. Veðurstofan ítrekar að þetta þýði varasamt ferðaveður í öllum þessum landshlutum. Hiti á landinu verður víða tvö til níu stig. Viðvaranir eru á gildi á stærstum hluta landsins í dag.Veðurstofan Búist er við því að veðrið gangi nokkuð hratt niður og verði búið síðdegis víðast hvar. Síðdegis má svo búast við öflugum skúradembum sunnantil á landinu, og þeim gæti fylgt þrumuveður segir athugasemdum veðurfræðings. Á morgun nálgast lægðin en verður farin að grynnast. Það er útlit fyrir fremur hvassa suðaustan- og austanátt með rigningu eða skúrum, en væntanlega nær mjög lítið af úrkomunni norður yfir heiðar. Hiti breytist lítið. Spákort fyrir klukkan 10.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustan og austan 10-18 m/s, en 18-23 um tíma syðst. Rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðanlands. Hiti 2 til 9 stig. Á laugardag: Minnkandi sunnanátt, styttir smám saman upp og kólnar. Gengur í norðan strekking með rigningu á Austfjörðum um kvöldið. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt og rigning eða slydda með köflum, einkum við norðurströndina. Hiti 0 til 5 stig, en frystir inn til landsins. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt. Slydda eða snjókoma norðanlands, annars stöku él. Hiti um eða undir frostmarki. Á þriðjudag: Vestlæg átt og él, en þurrt sunnan- og austanlands. Svalt í veðri. Á miðvikudag: Útlit fyrir austanátt með slyddu eða snjókomu.
Veður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira