Formúla 1

Hótað líf­láti eftir mis­tökin

Sindri Sverrisson skrifar
Kimi Antonelli hefur vonandi lesið sem minnst af viðbjóðnum sem sendur var á hann í gær.
Kimi Antonelli hefur vonandi lesið sem minnst af viðbjóðnum sem sendur var á hann í gær. Getty/Clive Rose

Forráðamenn Formúlu 1 liðs Red Bull hafa beðist afsökunar á sínum þætti í þeirri reiðiöldu sem beindist að Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes, sem fékk líflátshótanir eftir kappaksturinn í Katar um helgina.

Antonelli hefur breytt um prófílmynd á Instagram og er mynd þessa 19 ára Ítala nú einfaldlega alsvört, eftir aðkastið sem hann hefur orðið fyrir.

Eins og fjallað var um á Vísi í morgun var Antonelli sakaður um að hafa viljandi hleypt Lando Norris hjá McLaren fram úr sér, upp í 4. sæti, á næstsíðasta hringnum í gær. Norris fékk tveimur stigum meira fyrir að komast úr 5. sætinu og er því enn með tíu stiga forskot á Max Verstappen, en ekki tólf stiga, fyrir lokakappaksturinn í Abu Dhabi um helgina.

Það ýtti eflaust undir reiðina í garð Antonelli að það heyrðist þegar Gianpiero Lambiase, keppnisverkfræðingur Red Bull, heyrðist segja í talstöðinni við Verstappen að Antonelli hefði hleypt Norris fram úr sér þegar í raun var um að ræða mistök hjá Antonelli.

„Við erum í baráttunni um 2. sæti í keppni bílasmiða, sem er mikilvægt fyrir okkur. Kimi var að berjast um að ná mögulega 3. sæti. Hversu heilalaus þarftu að vera til að segja eitthvað svona?“ sagði Toto Wolff, framkvæmdastjóri Mercedes en bætti við að Lambiase hefði beðist afsökunar á ummælunum.

BBC hefur eftir Mercedes að sum af ljótustu skilaboðunum sem send hafi verið á Antonelli í gegnum samfélagsmiðla séu hreinlega líflátshótanir.

Í yfirlýsingu frá Red Bull er þáttur liðsins í þessu harmaður:

„Ummæli undir lok og strax eftir kappaksturinn í Katar, með getgátum um að Kimi Antonelli ökuþór Mercedes hefði viljandi hleypt Lando Norris fram úr sér, eru augljóslega ekki sönn. Endursýningar sýna að Antonelli missti um stundarsakir stjórn á bílnum sem varð til þess að Norris komst fram úr. Okkur þykir afskaplega leitt að þetta hafi leitt til þess að Kimi varð fyrir netníði.“

Samkvæmt Mercedes var „1.100% aukning í netníði miðað við það sem við sjáum venjulega eftir sunnudagskappakstur“. Fylgst er með Instagram-rás hans og hann þarf því ekki sjálfur að lesa ummælin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×