Verstappen stal sigrinum og allt galopið fyrir lokakeppnina Siggeir Ævarsson skrifar 30. nóvember 2025 18:00 Max Verstappen má leyfa sér að brosa. Vísir/Getty Heimsmeistarinn Max Verstappen sýndi úr hverju hann er gerður í dag þegar hann tryggði sér sigur í Katar kappakstrinum í Formúlu 1. Úrslitin í keppni ökumanna ráðast því ekki fyrr en í lokakappastri ársins.
Það var í raun ekkert sem benti til þess að Verstappen ætti möguleika á sigri í dag, Red Bull bíllinn var einfaldlega ekki nógu hraður samanborið við McLaren bílana en Lando Norris hefði tryggt sér titilinn með sigri í dag. Mögulega var það reynsluleysi hjá McLaren liðinu sem réð úrslitum í dag en undir lok keppninnar fór öryggisflaggið á loft og öryggisbíllinn út á brautina. Þá fóru öll liðin sem áttu möguleika á sigri í viðgerðastopp nema McLaren sem kom í bakið á þeim í lokin. THE TOP 10 IN QATAR! Who had this top three at the start of the day?! 😃#F1 #QatarGP pic.twitter.com/QfW821fJoj— Formula 1 (@F1) November 30, 2025 Úrslit dagsins þýða að baráttan á toppnum og um titilinn er galopin. Norris ef efstur með 408 stig, Verstappen næstur með 396 og þá Oscar Piastri með 392. Verstappen getur sennilega nokkuð vel við unað en það er ekki langt síðan hann var rúmum 100 stigum frá toppnum. Næsta keppni og síðasta keppni tímabilsins fer fram í Abu Dhabi næstu helgi, þann 7. desember.
Akstursíþróttir Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira