Sagði Campbell´s „gjörunninn“ mat fyrir „fátækt fólk“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. nóvember 2025 06:57 Campbell´s súpurnar njóta vinsælda um allan heim. Getty/Justin Sullivan Framkvæmdastjóri hjá matvælaframleiðandanum Campbell´s hefur verið settur í leyfi vegna málssóknar þar sem hann er sakaður um að hafa gert lítið úr vörum fyrirtækisins og sagt þær aðeins fyrir fátækt fólk.
Málið var höfðað af Robert Garza, sem starfaði sem netöryggissérfræðingur hjá Campbell's. Hann segist hafa verið látinn fjúka eftir að hafa tilkynnt ummæli Martin Bally til yfirmanna og greint frá því að hann hygðist klaga hann. Að sögn Garza sagði Bally á fundi að vörur Campbell´s væru „gjörunnar“ vörur fyrir „fátækt fólk“ og að indverskir starfsmenn fyrirtækisins væru „hálfvitar“ sem honum mislíkaði að þurfa að vinna með. Washington Post hefur undir höndum upptöku þar sem Bally heyrist bölva Indverjum og segir þá ekki færa um sjálfstæða hugsun. Þá heyrist hann einnig segja að súpur fyrirtæksins, sem hafa verið gríðarlega vinsælar meðal Bandaríkjamanna og fleiri í áratugi, innihaldi mögulega ræktaðar kjötvörur. „Ég kaupi ekki lengur vörur frá Campbell´s,“ heyrist maður segja, sem Garza segir Bally. „Ég vil ekki borða kjúkling sem kom úr þrívíddarprentara.“ Samkvæmt Campbell´s eru ásakanirnar gegn Bally nú í rannsókn en fyrirtækið segist aðeins nota „alvöru kjúkling“ í vörur sínar. Ef niðurstaðan verði sú að Bally hafi sannarlega sagt það sem hann er ásakaður um, sé það algjörlega óásættanlegt. Washington Post fjallar ítarlega um málið.
Bandaríkin Matvælaframleiðsla Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira