„Hefðum klárlega viljað fá aðeins meira út úr þessari viku“ Valur Páll Eiríksson skrifar 21. nóvember 2025 16:32 Arnar pússar saman varnarleik ungs liðs Íslands. vísir / ívar „Við erum að koma okkur inn í búbbluna sem er gott að vera í. Þar fáum við aðeins betri tíma og meira næði til að einbeita sér að því sem skiptir máli,“ segir Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta. Liðið hélt utan í dag, spilar æfingaleik í Færeyjum á morgun og hefur leik á HM í Þýskalandi eftir helgi.
Meiðsli og veikindi hafa strítt liðinu. Andrea Jacobsen er meidd og spilar líklega ekki fyrr en á síðari hluta mótsins. Elísa Elíasdóttir fer ekki með til Færeyja vegna axlarmeiðsla og þá hafa Hafdís Renötudóttir og Thea Imani Sturludóttir verið veikar. „Þetta er búin að vera lala vika með það að gera. Andrea er að keppa við tímann og við tökum stöðuna á henni dag frá degi. Elísa er líka búin að vera í veseni. Svo erum við ofan á það búin að vera í veikindum með lykilleikmenn. Hafdís er búin að vera veik og Thea er vonandi að koma sér upp úr því,“ segir Arnar. Það sé engin draumastaða þegar svo skammt er í mót. „Við hefðum klárlega viljað fá aðeins meira út úr þessari viku. En hún er samt sem áður búin að vera góð. Þeir leikmenn sem hafa verið hérna hafa verið á góðum æfingum og gert vel. Þetta er einn af þessum hlutum sem maður getur ekkert verið að hanga yfir eða gert of mikið í,“ segir Arnar. Ísland tapaði fyrir Færeyjum og Portúgal í undankeppni EM í síðasta mánuði. Liðið er töluvert breytt frá síðasta stórmóti og reynsluboltar hættir. Það þarf því að endurstilla liðið og segist Arnar einblína hvað helst á vörnina. „Við leggjum mesta vinnu í varnarleikinn. Það eru breytingar þar frá síðasta móti sem kalla á það að við gefum okkur tíma í það. Við erum með unga leikmenn í lykilhlutverkum sem hafa stigið mjög vel upp og komið vel inn í þetta. Það var stígandi á milli leikjanna í október. Við þurfum að halda þeim stíganda áfram og hjálpa til eins og hægt er,“ segir Arnar. Viðtalið má sjá í spilaranum. Klippa: Fagnar því að komast í búbbluna
HM kvenna í handbolta 2025 Landslið kvenna í handbolta Handbolti Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira