Skýjað og dálítil él Lovísa Arnardóttir skrifar 15. nóvember 2025 07:15 Í næstu viku er útlit fyrir svalar norðlægar áttir. Vísir/Anton Brink Hæðir suður af landinu og yfir Grænlandi, ásamt lægð norðaustur af Jan Mayen, beina vestlægum áttum yfir okkur í dag með norðvestan strekkingi bæði syðst og austantil fram eftir degi.
Í dag verður því vestlæg átt 13 til 18 metrar á sekúndu og skýjað og dálítil él víða um land fram undir morgun, en hægari suðvestantil. Lægir um hádegi. Breytileg átt 8 til 13 metrar á sekúndu sunnan- og austantil síðdegis, en hægari um vestanvert landið. Léttir víða til, einkum á Norður- og Austurlandi. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að á morgun verði hægbreytilegur vindur og bjart að mestu en þrír til 10 metrar á sekúndu norðvestan og austantil. Það þykknar svo upp með skúrum eða éljum síðdegis, fyrst suðvestantil. Síðdegis á sunnudag bætir í vind og úrkomu með norðan og norðaustan tíu til 15 metrum á sekúndu, fyrst norðantil, en 13 til 18 metrar á sekúndu suðaustantil um kvöldið. Hægari vindur suðvestantil. Í næstu viku er útlit fyrir svalar norðlægar áttir með éljum eða snjókomu víða. Kalt í veðri. Víða er hálka eða hálkublettir á vegum landsins en þó fært. Nánari upplýsingar um færð vega á vef Vegagerðar og veður á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Breytileg átt 3-8 m/s en strekkingur norðaustantil og á Austfjörðum fram eftir degi. Skýjað með köflum sunnan- og vestanlands og sums staðar dálítil slydda eða snjókoma, en rigning við ströndina seinni partinn. Hiti um eða yfir frostmarki. Bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en þykknar upp um kvöldið. Frost 1 til 8 stig. Á mánudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13. Skýjað með köflum og stöku él um landið norðanvert. Snjókoma eða slydda suðaustantil, en dálítil él suðvestanlands framan af degi. Léttir til um vestanvert landið síðdegis. Frostlaust við suðurströndina, annars frost 0 til 7 stig. Á þriðjudag: Norðlæg átt og stöku él við norður- og austurströndina, en yfirleitt bjart í öðrum landshlutum. Frost 2 til 12 stig. Á miðvikudag: Hæg breytileg átt og víða léttskýjað en þykknar upp á vestanverðu landinu. Frost 2 til 14 stig, mest inn til landsins, en hlýnar heldur við Vesturströndina. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt 5-13 með snjókomu og síðar rigningu víða um land, en einkum sunnan- og vestantil. Hiti 2 til 8 stig síðdegis. Á föstudag: Útlit fyrir vestlægar áttir og víða rigningu eða slyddu
Veður Færð á vegum Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira