Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2025 15:59 Valsarinn Þórey Anna Ásgeirsdóttir var markahæst í dag með níu mörk úr níu skotum. Vísir/Anton Brink Íslandsmeistarar Vals sýndu styrk sinn í Olís-deild kvenna í handbolta í dag með risasigri á Selfyssingum. ÍR næst á eftir toppliðinu eftir sigur á Haukum.
Valskonur unnu 24 marka sigur á Selfossi, 45-21, sem var fimmti deildarsigur liðsins í röð og sá sjötti í fyrstu sjö leikjunum. Það var ljóst frá upphafi að þetta yrði erfiður dagur fyrir gestina frá Selfossi. Valsliðið komst í 12-1 og var 24-7 yfir í hálfleik. Að lokum munaði síðan 24 mörkum á liðunum. Þórey Anna Ásgeirsdóttir nýtti öll níu skotin sín í leiknum og Elísa Elíasdóttir skoraði átta mörk. Lilja Ágústsdóttir skoraði fimm mörk og þær Lovísa Thompson, Arna Karitas Eiríksdóttir, Thea Imani Sturludóttir voru allar með fjögur mörk. Hulda Hrönn Bragadóttir skoraði fimm mörk fyrir Selfoss og Mia Kristin Syverud var með fjögur mörk. Sara Dögg Hjaltadóttir, markahæsti leikmaður Olís-deildar kvenna, skoraði níu mörk þegar ÍR vann fjögurra marka sigur á Haukum, 30-26, í Skógarselinu. ÍR-konur voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11, en næst á eftir Söru var Matthildur Lilja Jónsdóttir með átta mörk og Anna María Aðalsteinsdóttir skoraði fjögur mörk. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Embla Steindórsdóttir skoruðu báðar sjö mörk fyrir Haukaliðið sem er í fimmta sætinu. Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoraði fimm mörk. Þetta var þriðji sigur ÍR-liðsins í röð og sá fimmti í fyrstu sjö leikjunum sem þýddi að Breiðholtsliðið hoppaði upp í annað sæti deildarinnar.
Olís-deild kvenna Valur ÍR Haukar UMF Selfoss Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira