Hvasst, hlýtt og von á asahláku eða glerhálku Atli Ísleifsson skrifar 31. október 2025 07:11 Hiti á landinu verður á bilinu tvö til ellefu stig, mildast sunnantil. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil lægð er nú undan suðurströnd landsins sem veldur hvassri norðaustanátt víða um land, en stormi á Suðausturlandi og á Vestfjörðum og Norðvesturlandi síðdegis og fram á kvöld.
Á vef Veðurstofunnar segir að lægðin beri með sér hlýtt og rakt loft úr suðri og geta hitatölur náð allt að ellefu stigum sunnantil, og má gera ráð afar umhleypingasömu veðri. Hiti á landinu verður á bilinu tvö til ellefu stig, mildast sunnantil. Gular viðvaranir taka gildi víðs vegar um land um í dag vegna norðaustanstorms. „Víða rigning eða slydda á morgun, en talsverð rigning á Suðaustur- og Austurlandi. Vegna mikillar snjókomu síðustu daga má gera ráð fyrir asahláku og jafnvel glerhálku víða á sunnanverðu landinu og á Austfjörðum sem getur valdið hættu. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Viðvaranir hafa verið gefnar úr vegna vinds, asahláku og úrkomu. Síðdegis á laugardag dregur víða úr vindi, en þó áfram stormur á Vestfjörðum. Útlit er fyrir talsverða rigningu norður á Ströndum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Minnkandi norðaustanátt, 5-13 m/s síðdegis, hvassast við syðst, en norðaustan 13-18 norðvestantil fram á kvöld. Rigning eða slydda með köflum, en snjókoma og skafrenningur til fjalla á Vestfjörðum. Talsverð rigning um tíma norðaustantil. Hiti 1 til 9 stig, mildast sunnanlands. Á sunnudag: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og stöku skúr, en að mestu bjart suðaustanlands. Norðaustan 8-13 m/s norðvestantil og rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Á mánudag: Norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 norðvestantil og við suðausturströndina. Skýjað með köflum og úrkomulítið, en slydda eða snjókoma á Vestfjörðum. Hiti breytist lítið. Fer að rigna á Suðausturlandi um kvöldið. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir norðan 8-15 m/s, hvassast norðvestantil. Slydda eða snjókoma, en þurrt að kalla sunnan heiða.Suðlæg eða breytileg átt og víða rigning eða slydda, en lengst af þurrt austanlands. Hiti 2 til 7 stig. Á fimmtudag: Líklega austan- og norðaustanátt og dálítl slydda eða snjókoma, en úrkomumeira sunnan- og suðvestanlands.
Veður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira