X-kynslóðin: Oft gleymd en ómissandi Rakel Sveinsdóttir skrifar 10. október 2025 07:02 Það er svo mikið talað um Z kynslóðina, aldamótakynslóðina og jafnvel Baby boomers kynslóðina að X kynslóðin gleymist oft. En á mikið eftir enn og á sína styrkleika umfram aðra, rétt eins og hinir hóparnir. X kynslóðin er fædd tímabilið 1965-1979. Vísir/Getty Það er svo mikið talað um Z-kynslóðina að aðrar kynslóðir falla eiginlega í skuggann. Ekki síst X-kynslóðin, sem þó er ein sú mikilvægasta á vinnumarkaði í dag: Fædd tímabilið 1965-1979 og á því heillangan tíma eftir á vinnumarkaði.
Er líka sá hópur sem er sterkur sem stjórnendahópur og/eða hópur fólks sem er líklegur til að taka við keflinu þegar Baby Boomers, eða uppgangskynslóðin svokalla ( fædd 1946-1964) lætur það af hendi. Margt einkennir X kynslóðina sérstaklega og gerir hana eiginlega ómissandi. Til dæmis er þetta kynslóðin sem hefur upplifað mjög mikla umbreytingu: Tæknin var allt önnur þegar þessi hópur ólst upp. Í grein í Forbes er líka talað um að þetta sé sú kynslóð sem hefur verið hvað mest leiðandi í stefnumótun og innleiðingu nýrra stefnu á vinnustöðum. Þetta er líka hópurinn sem leiddi þá hugsun að vinnumarkaðurinn þyrfti að finna betra jafnvægi á milli einkalífs og vinnu. Það eru samt líka ýmsar áhyggjur sem þessi hópur hefur. Áhyggjur sem fólk upplifir jafnvel sem ógn. Til dæmis af fjárhagslegu öryggi sínu eftir starfslok. Eða af samkeppninni sem nú er að skapast á vinnumarkaði þar sem gervigreindin og sjálfvirknivæðingin er að þróast svo svakalega hratt. X-kynslóðin er líka að glíma við alls kyns erfiðleika eins og mikla streitu eða jafnvel kulnun. Þá upplifa sumir að það sé svolítið verið að ganga fram hjá þeim í leiðtogastörf. Frá Baby boomers er einfaldlega hoppað niður í yngra fólk og beint í Y-kynslóðina, eða aldamótakynslóðina svokölluðu. Sem er fædd tímabilið 1980-1994. Í raun má lesa úr ofangreindu, hver góðu ráðin eru þá fyrir X-kynslóðina. Því lið fyrir lið gætu þau til dæmis litið svona út: Settu þér markmið um fjárhagsáætlun og sparnað fyrir efri árin. Haltu áfram og vertu vel vakandi yfir því að þróa þig vel í notkun á nýrri tækni, sérstaklega gervigreindinni. Vertu vakandi yfir sveigjanleika í starfi, jafnvægi einkalífs og vinnu. Ræktaðu vel sjálfið þitt, hlúðu að þér og þínum nánustu því hvoru tveggja er eitthvað sem skiptir miklu máli með tilliti til streitu eða að sporna við kulnunareinkennum. Nýttu þér þá styrkleika að vera í hópi þeirra sem getur brúað bilið á milli þeirra sem eldri og yngri eru. Nýttu þér þá styrkleika sem X kynslóðin hefur umfram aðra kynslóðahópa. Og mundu hversu margiröflugir frumkvöðlar tilheyra þessum hópi. Sem dæmi má nefna Bill Gates, Jeff Bezos eða Elon Musk.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda „Það sem er athyglisvert er að fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda í fimm ár eða lengur. Og spurningin er þá: Ef svo verður, mun þetta fólk snúa til baka?“ spyr Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri rannsóknarfyrirtækisins Prósent. 27. mars 2025 07:00 Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Það eru alls konar kenningar um að hin svokallaða Z-kynslóð sé ekkert svo ofboðslega hrifin af því að fara inn á vinnumarkaðinn eða að vinna langa vinnudaga. 28. febrúar 2025 07:03 Z kynslóðin er allt öðruvísi en eldri kynslóðir og mun breyta öllu „Við þurfum alltaf að taka samtalið. Við þurfum alltaf að passa að vera í samráði við unga fólkið því að þau munu breyta öllu. Z kynslóðin, sem nú er 10 til 27 ára, er kynslóð sem er allt öðruvísi en kynslóðin sem er ríkjandi stjórnendahópur í dag,“ segir Anna Steinsen einn eigandi KVAN. 15. desember 2022 07:01 Z kynslóðin byrjuð að breyta öllu: Sleppa háskólanámi og eru meðvituð um úreldingu starfa Z kynslóðin er kynslóðin sem sögð er vera sú sem mun breyta öllu. Þetta er unga fólki sem er fætt á tímabilinu 1995-2012, þekkir ekkert annað en internetið og samfélagsmiðla og sér til dæmis ekki fyrir sér hvernig háskólanám í dag á að nýtast þeim á vinnumarkaði næstu áratugi. 13. september 2023 07:05 Gervigreindin: Stjórnendur framtíðarinnar verði þjálfarar Það hefur löngum verið horft til þess að atvinnulífið geti lært margt af íþróttum. Þar sem þjálfarar blása fólki byr í brjóst, efla liðsheildina og hvetja til dáða svo það er nánast leit að öðru eins. 29. apríl 2025 07:01 Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda „Það sem er athyglisvert er að fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda í fimm ár eða lengur. Og spurningin er þá: Ef svo verður, mun þetta fólk snúa til baka?“ spyr Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri rannsóknarfyrirtækisins Prósent. 27. mars 2025 07:00
Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Það eru alls konar kenningar um að hin svokallaða Z-kynslóð sé ekkert svo ofboðslega hrifin af því að fara inn á vinnumarkaðinn eða að vinna langa vinnudaga. 28. febrúar 2025 07:03
Z kynslóðin er allt öðruvísi en eldri kynslóðir og mun breyta öllu „Við þurfum alltaf að taka samtalið. Við þurfum alltaf að passa að vera í samráði við unga fólkið því að þau munu breyta öllu. Z kynslóðin, sem nú er 10 til 27 ára, er kynslóð sem er allt öðruvísi en kynslóðin sem er ríkjandi stjórnendahópur í dag,“ segir Anna Steinsen einn eigandi KVAN. 15. desember 2022 07:01
Z kynslóðin byrjuð að breyta öllu: Sleppa háskólanámi og eru meðvituð um úreldingu starfa Z kynslóðin er kynslóðin sem sögð er vera sú sem mun breyta öllu. Þetta er unga fólki sem er fætt á tímabilinu 1995-2012, þekkir ekkert annað en internetið og samfélagsmiðla og sér til dæmis ekki fyrir sér hvernig háskólanám í dag á að nýtast þeim á vinnumarkaði næstu áratugi. 13. september 2023 07:05
Gervigreindin: Stjórnendur framtíðarinnar verði þjálfarar Það hefur löngum verið horft til þess að atvinnulífið geti lært margt af íþróttum. Þar sem þjálfarar blása fólki byr í brjóst, efla liðsheildina og hvetja til dáða svo það er nánast leit að öðru eins. 29. apríl 2025 07:01