Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. október 2025 14:03 Frítt er inn á hátíðina og vilja skipuleggjendurnir þrír helst tapa pening. Tólf klukkustunda sviðslistarhátíðin „Komum út í mínus“ fer fram laugardaginn 4. október frá hádegi til miðnættis. Markmiðið er lyfta upp grasrót íslenskra sviðslista og geta áhorfendur kíkt á dansverk um fótbolta, hlustað á uppistand, sánað sig eða fengið sér pulsu.
Hátíðin fer fram í Tóma Rýminu við Skeljanes í Skerjafirði en aðgangur að hátíðinni er ókeypis. Blaðamaður ræddi við Mörtu Ákadóttur, einn skipuleggjenda hátíðarinnar. Plakat hátíðarinnar er með sérstæðan stíl. Titillinn „Komum út í mínus“ er forvitnilegur, hver er pælingin? „Við finnum fyrir þörf á grasrót í sviðslistum í Reykjavík. Við viljum sjá sýningar sem eru ekki söluvænar. Markmið okkar er að græða engan pening á þessu, helst tapa pening,“ segir Marta. Hverju mega gestir eiga von á? „Gestir eiga von á tólf klukkustunda sviðslistaviðburði þar sem hægt er að koma og fara að vild. Performansarnir eru fjölbreyttir og flestir stuttir, eða um hálftími, og aðgangur er ókeypis,“ segir hún. „Það má sjá dansverk fyrir unga áhorfendur, dansverk um fótbolta, uppistand og upplestur á umsóknum sem hafa fengið neitun, svo eitthvað sé nefnt. Þess á milli verður hægt að fara á sánu, spila fótbolta og fá sér pulsu.“ Hér að neðan má sjá dagskrána en nánari upplýsingar má finna á Instagram-síðu hátíðarinnar. Dagskrá hátíðarinnar.
Menning Leikhús Reykjavík Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira