Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Sindri Sverrisson skrifar 13. september 2025 15:56 Þórsarar fengu frábæran stuðning þegar þeir tryggðu sig upp í Bestu deildina í dag. vísir/Ernir Eftir rúman áratug í næstefstu deild munu Þórsarar spila í Bestu deild karla í fótbolta á næstu leiktíð. Þeir tryggðu sér sæti þar með sigri gegn Þrótti á troðfullum AVIS-vellinum í Laugardal í dag. Selfoss féll hins vegar í 2. deild með Fjölni.
Það var mikil stemning í Laugardalnum og margt um manninn enda voru Þór og Þróttur bæði í þeirri stöðu að geta með sigri lokið langri bið eftir sæti í efstu deild. Þórsarar unnu 2-1 sigur og spila því í efstu deild næsta sumar, eftir að hafa síðast verið þar árið 2014. Þórsarar munu fagna vel og lengi.vísir/Ernir Sigfús Fannar Gunnarsson kom Þór yfir í fyrri hálfleiknum en engum var þó rótt því jafntefli í leiknum hefði þýtt að Njarðvík hefði skotist upp í efsta sætið, með sigri gegn Grindavík. En Þórsarar gátu farið að syngja og tralla þegar Ingimar Arnar Kristjánsson bætti við seinna marki þeirra, tuttugu mínútum fyrir leikslok. Þróttarar reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn en tókst það ekki fyrr en seint í uppbótartíma, þegar Viktor Andri Hafþórsson skoraði. Þeir þurfa nú að sætta sig við að fara í umspil um seinna lausa sætið í Bestu deildinni. Bikarinn á loft, eftir sigurinn í Lengjudeildinni í dag.vísir/Ernir Keflavík gegn Njarðvík og Þróttur gegn HK í umspilinu Liðin í 2.-5. sæti fara í umspilið og nú er ljóst að þar mætast annars vegar Njarðvík og Keflavík, og hins vegar Þróttur og HK. Njarðvík endaði í 2. sæti með öruggum sigri gegn Grindavík, 3-0, Þróttur endar í 3. sæti og HK í 4. sæti eftir 4-0 útisigur gegn Völsungi á Húsavík. Keflvíkingar stálu svo 5. sætinu af ÍR með 4-1 sigri á Selfyssingum sem þar með féllu niður í 2. deild. ÍR dugði stig gegn Fylki til að komast í umspilið en Árbæingar unnu 2-1 og tryggðu sér áframhaldandi veru í Lengjudeildinni. Leiknismenn héldu sér einnig uppi, með 2-1 sigri á föllnum Fjölnismönnum.
Lengjudeild karla Besta deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira