Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. september 2025 07:02 Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kennir kúrsinn „Inside the Situation Room“ í Columbia þessa önn. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr tíma hjá Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í MPA-námi sínu við Columbia-háskóla þessa önn.
Áslaug Arna, sem hefur verið í leyfi frá þingmennsku síðan í maí vegna námsins, er með hópspjall (e. community chat) á Instagram þar sem hún deilir með fylgjendum sínum fréttum af náminu þar ytra. Sjá einnig: Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Í skilaboðum í gær greindi hún frá því að sumarönn skólans hefði klárast síðustu mánaðamót og haustið handan við hornið. Clinton í pontu. „Fyrir haustönnina var síðan verkefnið stórt að velja áfanga, prófa og pússla saman sinni eigin stundatöflu. Ég er mjög spennt fyrir mörgum áföngum og hlakka til haustsins. Þetta klárast nú í lok vikunnar og er að taka á sig mynd, samkeppnin er talsverð og í suma áfanga þurfti sérstaklega að sækja um með umsóknarferli sem hófst í sumar,“ skrifaði Áslaug. „Þar má nefna áfangann sem Hillary Clinton kennir alla miðvikudaga ásamt dean skólans og heitir: Inside the Situation room og snýst um ákvarðanatöku leiðtoga, sérstaklega í krísum og er mjög áhugavert að sitja núna þar sem það er mjög náið því sem er að gerast í heiminum á hverjum degi,“ skrifaði hún jafnframt. Námsdvöl Áslaugar hefur ekki verið óumdeild þar sem hún sleppti því að kalla inn varamann þegar hún fór út til Bandaríkjanna í maílok og þáði því full laun þar til Birna Bragadóttir, sjötti þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, tók sæti hennar 4. júlí. Við þingsetningu Alþingis á þriðjudag mátti hins vegar sjá varamann Áslaugar, lögmanninn Sigurð Örn Hilmarsson, sem fær að spreyta sig á þinginu þar til Áslaug kemur aftur í maí 2026.
Sjálfstæðisflokkurinn Bandaríkin Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, hefur komið sér vel fyrir í íbúð sinni í New York í Bandaríkjunum. Hún setti sér það markmið að koma sér fyrir á innan við viku sem henni tókst með glæsibrag. 8. júlí 2025 16:19 „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, er nú komin til New York þar sem hún ætlar næsta árið að stunda nám við Columbia háskóla. Áslaug er komin í níu mánaða leyfi frá þingstörfum á meðan. 29. júní 2025 22:01 Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira
Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, hefur komið sér vel fyrir í íbúð sinni í New York í Bandaríkjunum. Hún setti sér það markmið að koma sér fyrir á innan við viku sem henni tókst með glæsibrag. 8. júlí 2025 16:19
„Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, er nú komin til New York þar sem hún ætlar næsta árið að stunda nám við Columbia háskóla. Áslaug er komin í níu mánaða leyfi frá þingstörfum á meðan. 29. júní 2025 22:01