13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 24. ágúst 2025 22:00 Íbúar fallast í faðma við byggingu sem lögð var í rúst í árás Rússa í Kænugarði þann 17. júní síðastliðinn, á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Í dag, 24. ágúst, halda Úkraínumenn upp á sinn sjálfstæðisdag. AP/Efrem Lukatsky Heildarstuðningur Íslands við Úkraínu hefur numið rúmum þrettán milljörðum frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa. Úkraínskur framleiðandi drónahugbúnaðar segir hina svokölluðu dönsku leið, sem Ísland hefur stutt, vera eina áhrifaríkustu leiðina til að styðja við Úkraínu.
Samkvæmt nýrri samantekt utanríkisráðuneytisins fyrir fréttastofu hefur heildarstuðningur Íslands við Úkraínu það sem af er þessu ári numið 3,9 milljörðum króna. Þar af eru 1,6 milljarðar vegna mannúðar- og efnahagsstuðnings og 2,3 milljarðar í varnartengdan stuðning. Alls er gert ráð fyrir að stuðningur Íslands við Úkraínu á árinu nemi 5,7 milljörðum króna, 2,1 milljarður vegna mannúðarmála og 3,6 í varnartengdan stuðning. Frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa inn í Úkraínu í febrúar 2022 og til og með 18. ágúst síðastliðnum hefur stuðningur Íslands við Úkraínu numið 13,3 milljörðum króna. Þar af hafa rúmir sjö runnið í varnartengd verkefni og sex í mannúðar- og efnahagsstuðning. Mest fjármagn hefur runnið í sjóði Alþjóðabankans á sviði efnahagsstuðnings, innviðauppbyggingar og grunnþjónustu, í sjóð á vegum ríkjahóps um sprengjuleit og -eyðingu, færanlegt neyðarsjúkrahús, framlög til orkumála og mannúðaraðstoð á sviði stofnana Sameinuðu Þjóðanna. Hér að neðan má sjá sundurliðun yfir það fjármagn sem Íslendingar hafa varið í stuðning við Úkraínu eftir málaflokkum. Líkt og sjá má í grafinu hér að ofan hefur Ísland sett um átta hundruð milljónir í stuðning við úkraínskan hergagnaiðnað í gegnum dönsku leiðina svokölluðu. Úkraínskir hergagnaframleiðendur sem sóttu ráðstefnu um hergagnaiðnaðinn í Kaupmannahöfn í síðustu viku segja dönsku-leiðina vera eina þá skilvirkustu til að styðja við Úkraínu. Peningarnir fari beint inn í hagkerfið Hugmyndin með dönsku leiðinni er að veita fjármagni beint til framleiðslu hergagna í Úkraínu. Þessi leið til að styðja við varnir Úkraínu hefur, eins og ef til vill gefur að skilja, gefist vel að mati þarlendra hergangaframleiðenda. Einn þeirra er Yurii Stasinchuk, framkvæmdastjóri FoxFour, úkraínsks nýsköpunarfyrirtækis sem sérhæfir sig í drónatækni. „Peningarnir fara þannig beint inn í úkraínska hagkerfið sem þýðir að það eru fleiri störf, en það eru mörg fyrirtæki sem hafa verið flutt vegna stríðsins. Þannig þetta hefur jákvæð áhrif á allt úkraínska hagkerfið annars vegar. Hins vegar uppfylla úkraínsk vopn best þarfirnar á vígvellinum og fyrst verksmiðjurnar eru á sama svæði og notandinn þýðir það að hægt er að bregðast hraðar við. Svo þetta er ein besta leiðin til að styrkja varnir Úkraínu, og Evrópu,“ segir Yurii. Yurii Stasinchuk, framkvæmdastjóri FoxFour, og samstarfsmaður hans Volodynyr Zabulskyi.Vísir/Elín Margrét Tæknin sem FoxFour þróar felst meðal annars í sjónrænni leiðsögu og greiningu skotmarka en vörur fyrirtækisins geta nýst bæði í hernaðarlegum og borgaralegum tilgangi að sögn Yurii. „Við erum birgjar fyrir úkraínska herinn og aðra evrópska heri, þannig við framleiðum ekki sjálfa drónana heldur útvegum einingar til ýmissa notenda. Þetta getur verið sjónræn leiðsaga fyrir borgaralegan markað, það getur verið greining staðsetningar fyrir notendur í hernaði og svo framvegis,“ útskýrir hann í samtali við fréttastofu. Annars konar stríðsrekstur kalli á annars konar lausnir Hann segir að stuðningur bandamanna Úkraínu, þar á meðal Danmerkur og annarra Norðurlanda, skipta gríðar miklu máli. Ekki aðeins fyrir Úkraínu heldur fyrir Evrópu alla. Eðli stríðsins í Úkraínu hafi sýnt fram á að hugsa þurfi varnar- og öryggismál að einhverju leyti upp á nýtt, ekki dugi að draga lærdóm af fyrri stríðum í álfunni. „Við verðum að fara að taka varnarmál alvarlega. Allir hershöfðingjar búa sig undir síðasta stríð, ekki það næsta, í þessu tilfelli. En stríðið í Úkraínu hefur sýnt að ef maður býr sig undir fyrra stríð þá bíður maður í lægri hlut í átökum og mörgum mannslífum hefði getað verið bjargað.“
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Sjá meira