Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Atli Ísleifsson skrifar 20. ágúst 2025 07:35 Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar. Vísir/Vilhelm Peningastefnunefnd Seðlabankans mun tilkynna um vaxtaákvörðun sína klukkan hálf níu í dag, en um er að ræða fyrstu ákvörðun nefndarinnar eftir sumarfrí.
Stýrivextir bankans standa nú í 7,5 prósent en nefndin lækkaði síðast vextina nokkuð óvænt úr 7,75 prósentum í 7,5 prósent í maí. Greiningardeild Landsbankans spáði því í síðustu viku að peningastefnunefnd myndi nú gera hlé á vaxtalækkunarferlinu, halda stýrivöxtum óbreyttum og að þeir muni raunar ekki lækka meira á árinu. Nefndin hefur lækkað vexti á síðustu fimm fundum en í ljósi „þrálátrar verðbólgu og kröftugrar eftirspurnar“ – líkt og greiningardeildin komst að orði – er talið að hún staldri við í bili. Stýrivextir standa nú í 7,5 prósentum og ef tekið er mið af liðinni verðbólgu standa raunstýrivextir í 3,5 prósentum. Hagstofan birtir verðbólgumælingu ágústmánaðar í þarnæstu viku og spáir greiningardeild Landsbankans því að verðbólga verði óbreytt frá því í júlí, 4,0 prósent. Samhliða síðustu vaxtaákvörðun birti peningastefnunefnd yfirlýsingu þar sem kom fram að ekki hefðu skapast aðstæður til að hægt væri að slaka á raunvaxtastiginu. Frekari skref til lækkunar vaxta væru háð því að verðbólga færðist nær 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans.
Seðlabankinn Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira