B sé ekki best Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. ágúst 2025 11:25 Bjarki Már Baxter er fjögurra barna faðir. Bylgjan Foreldri grunnskólabarna segir einkunnakerfi byggt á bókstöfum draga úr hvata nemenda til að gera betur og sé skalinn of víður. Hann segir kennara viðurkenna að kerfið veiti þeim ekki nægar upplýsingar til að sinna starfi sínu og gagnrýnir harðlega „yfirborðskennda“ aðgerðaáætlun menntamálaráðuneytisins. „
Þetta er bein tilvitnun í umsjónarkennara einnar af dætrum mínum í grunnskóla,“ segir Bjarki Már Baxter, lögmaður á Málþingi lögmannsstofu og fjögurra barna faðir, er hann ræddi grein sem hann birti í Morgunblaðinu titluð „B er best.“ „Hún er að undirbúa bekkinn og foreldra sem eru þarna viðstaddir. Hún segir „krakkar, hafið nú í huga að B er best.“ Þetta sat í mér, ég ranghvolfdi augunum. Ég held ég viti alveg hvað hún var að undirbúa börnin undir, hún var að undirbúa þau fyrir að þegar þau kæmu heim og skoðuðu einkunnirnar að þetta væri minna og meira B. Ég fer að skoða kerfið, þá er það uppbyggt þannig þetta einkunnakerfi að skalinn er svo víður,“ segir Bjarki sem var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni. Hann segir það mismunandi hvað einkunnin B þýði eftir fögum og aldri barnanna. Sem dæmi tekur Bjarki stærðfræðipróf sem dóttir hans þeytti. Einkunnin B var jafngild 4,5 til 7,5 á gamla einkunnaskalanum. „Þetta er semsagt frá falli í mjög góða einkunn. Ég fæ þá tilfinningu að það sé markmið menntakerfisins að það séu allir með B,“ segir Bjarki. „Ég get tekið annað dæmi, dóttir mín var að læra fyrir útskrift úr tíunda bekk allan síðasta vetur og við vorum náttúrulega að meta hennar möguleika að komast í menntaskóla. Ég fer inn á þessi kerfi Mentor og sé að hún er svolítið gegnumgangandi, hún er með B í öllu. En ég veit ekkert af því að skalinn er svo víður, hvort að hún sé að detta niður í C eða komast upp í A.“ Vöntun á hvata stærsta vandamálið Bjarki segir marga vankanta vera á íslenska menntakerfinu, til að mynda sé enginn hvati fyrir nemendur til að gera betur. Þá læri börnin heldur ekki að takast á við að ná ekki markmiðunum sínum. „Menntun snýst um í mínum huga að þú sért að keppa við sjálfan þig, að þú sért að ná árangri,“ segir hann. „Ef þú ert með einhverja B-einkunn sem er á einhverju skala ertu kannski bara dæmdur til að vera þar, það er enginn hvati til að gera betur. Ég held að það sé stærsta vandamál kerfisins, það vantar hvata fyrir nemendur og kennara að gera betur.“ Hann tekur jafnframt fram að hann sé ekki menntaður í þessum fræðum, heldur tali sem foreldri. „Ég er bara foreldri, ég er ekki menntaður kennari eða uppeldis- eða kennslufræðingur. Ég er að tala út frá minni reynslu.“ Að hans mati er staðan í menntakerfinu afskaplega slæm og fátt sé gert til að afstýra vandanum. „Við erum á einhverri vegferð, eins og með þessu bókstafakerfi, sem ég held að sé ekki að hjálpa okkur út úr því.“ Skiptar skoðanir kennara Bjarki Már segist hafa fengið sterk viðbrögð við greininni sem hann skrifaði en neikvæðu viðbrögðin komi aðallega frá kennurum. Hins vegar segist hann einnig sjálfur hafa rætt við nokkra kennara barnanna sinna sem líki illa við fyrirkomulag einkunna. „Ég hef rætt í öllum foreldraviðtölum við kennara um þetta einkunnakerfi, á mjög góðum nótum, ég er ekkert að gagnrýna þau í tveggja manna tali heldur fá bara betri upplýsingar. Ef ég næ kennurunum á gott eintal þá kemur akkúrat þetta, að þeir viðurkenna sjálfir að leiðbeiningarnar sem þeir fá til að starfa innan þessa kerfis eru ófullkomnar, þeim líði ekkert endilega vel í því,“ segir hann. „Ég var meira að segja í einu foreldraviðtali með kennara með töluverðan starfsaldur þar sem hún var með neðst í bunkanum einkunnir nemanda eftir einn til tíu skalanum. Hún sagði að hún hefði verið svo lengi í þessu að henni fyndist þetta skýrara en hún mætti ekkert vera að sýna þetta.“ Kallar eftir aðgerðum og upplýsingum Hann gefur þá lítið fyrir aðgerðaáætlun stjórnvalda í málaflokknum. „Í júlí, mánuði eftir að þessi skýrsla kemur, þá birtir menntamálaráðuneytið aðgerðaskýrslu. Ég las hana, ég er ekkert í pólitík og hef enga þörf fyrir stór orð en orðið froða, aðgerðaáætlun án aðgerða og eitthvað svona kom í hugann. Þetta er svona yfirborðskennt skjal en það er ekkert í þessu skjali sem er að fara breyta um kúrs,“ segir Bjarki. Hann kallar eftir því að nákvæmari upplýsingar um árangur grunnskólabarna eftir skólum og landsvæðum verði birtar í þeim tilgangi að foreldrar og börn geti gert sér grein fyrir hvar þau standi á landsvísu. Þá hvetur hann foreldra og aðra til að ræða málaflokkinn betur. „Við þurfum að vera óhrædd sem samfélag að taka þetta mál upp,“ segir Bjarki.
Bítið Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Innlent Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Innlent Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Innlent Fleiri fréttir Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri Sjá meira