Skúrir á víð og dreif Atli Ísleifsson skrifar 3. júlí 2025 07:11 Hiti á landinu verður allt að 15 til 17 stig í dag. Vísir/Vilhelm Úrkomusvæði gekk yfir landið og því rigndi nokkuð víða í gærkvöldi og í nótt. Vindur verður með hægasta á móti.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag sé útlit fyrir að vindur verði með hægasta móti. „Búast má við skúrum á víð og dreif, einkum síðdegis, en eitthvað ætti að sjást til sólar milli skúranna. Hiti allt að 15-17 stig, hlýjast þar sem sólin nær að skína og er ekki afgerandi munur milli landshluta í dag hvað hlýindi varðar. Á morgun (föstudag) er hæg breytileg átt eða hafgola í kortunum. Líklega bjartara veður en í dag, en síðdegis geta skúrir látið á sér kræla á stöku stað, einkum inn til landsins. Væntanlega mun minna af skúrum á sveimi á morgun heldur en í dag. Hitinn á morgun mjakast uppávið um eina til tvær gráður frá deginum í dag,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Hæg breytileg átt eða hafgola. Bjart með köflum, en sums staðar skúrir síðdegis. Hiti yfirleitt 10 til 18 stig, hlýjast inn til landsins. Á laugardag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir á víð og dreif. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Norðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og víða bjart veður, en stöku skúrir á Norður- og Austurlandi síðdegis. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á mánudag: Gengur í sunnan 5-13 og þykknar upp á Suður- og Vesturlandi með súld eða rigningu síðdegis. Hægari vindur og bjartviðri fyrir norðan og austan. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu. Á þriðjudag: Sunnanátt með rigningu og súld, en úrkomulítið norðaustantil landinu. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt og víða vætusamt, en þurrt að kalla austanlands. Kólnar heldur í veðri.
Veður Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Sjá meira