Leik lokið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögu­legan sigur

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Mosfellingar unnu í kvöld sinn fyrsta útisigur í sumar og um leið þann fyrsta hjá félaginu í efstu deild.
Mosfellingar unnu í kvöld sinn fyrsta útisigur í sumar og um leið þann fyrsta hjá félaginu í efstu deild. Vísir/Diego

Afturelding vann sinn fyrsta útisigur frá upphafi í efstu deild þegar liðið sótti þrjú stig til Vestmannaeyja í kvöld. Afturelding vann leik nýliðanna 2-1 eftir að Eyjamenn komust 1-0 yfir í fyrri hálfleik hálfleik.

Vicente Valor kom ÍBV í 1-0 eftir aðeins tólf mínútna leik en Mosfellingar sneru leiknum með tveimur mörkum á tveimur mínútum snemma í seinni hálfleik. Aron Jóhannsson lagði upp fyrra markið fyrir Benjamin Stokke og skoraði það seinna sjálfur.

Afturelding var búið að spila fimm útileiki í sumar án þess að ná að fagna sigri.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira