Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lovísa Arnardóttir skrifar 13. júní 2025 09:10 Herdís segir mikilvægt að allt í rúmi ungbarnsins sé samkvæmt nýjustu gæðakröfum. Ekkert aukalegt eigi að vera í rúminu. Bylgjan og Vísir/Getty Herdís Storgaard, hjúkrunarfræðingur, segir ung börn hvorki eiga að sofa úti í vagni né uppi í rúmi hjá foreldrum sínum. Herdís segir barnavagna ekki hannaða fyrir börn til að sofa í. Það séu gerðar kröfur til neytendavöru sem er ætluð kornabörnum því þau geta ekki bjargað sér sjálf úr aðstæðum á fyrsta aldursári. Herdís fór yfir málið í Bítinu á Bylgjunni í dag.
Í leiðbeiningum með barnavögnum standi skýrt að það megi aldrei skilja börn eftir eftirlitslaus í þeim og að ástæðan sé að dýnan í vagninum er ekki öndunarprófuð. Á síðustu árum hafi kröfur aukist til vöggu, rúma og ferðarúma sem ung börn gisti í til að koma í veg fyrir að eitthvað komi fyrir barnið á meðan það sefur og jafnvel foreldrarnir líka. Rætt var um málið í Þetta helst á Rás 2 í vikunni og hefur það vakið nokkra umræðu í samfélaginu og jafnvel vakið furðu en það er, og hefur verið , afar algengt að börn sofi úti í vögnum á Íslandi. Herdís segir umræðuna koma sér á óvart. Þetta séu leiðbeiningarnar sem séu í gildi og hafi verið í gildi síðustu 25 árin. Umræðan geti verið vísbending um að koma þurfi þessum upplýsingum betur til foreldra. Herdís segir umræðuna minna á umræðu sem spratt upp þegar sett var skylda á börn að nota bílbelti í bíl. Þá hafi læknir á spítalanum fussað og sveiað á meðan hann reykti pípu inni á spítalanum en vann samt við það að taka á móti fólki sem lent hafði í bílslysum. Herdís segir slysatölfræði á Íslandi illa aðgengilega. Það hafi verið forræðisdeila um það hver eigi upplýsingarnar, hver eigi að hýsa og safna þeim og birta þær. Til sé skýrsla um dánarorsakir barna þar sem sérstaklega er fjallað um slys og það hafi vakið athygli hennar að helmingur barna undir eins árs aldri, sem hafa látist á tuttugu árum, kafna. Ekki sé tekið fram í skýrslunni hvar þau kafna. Tíðni barnadauða lág á Íslandi Herdís segir tíðni barnadauða mjög lága á Íslandi. Það sé erfitt að vera ungt foreldri í dag því það sé ofgnótt upplýsinga á Internetinu. Við þessar aðstæður sé mikilvægt að fagfólk sé samstíga og því hafi leiðbeiningar um svefn barna verið uppfærðar í fyrra. Fyrirmyndin séu leiðbeiningar í Bandaríkjunum sem voru samræmdar og uppfærðar fyrir einhverjum árum. Þar hafi ótímabærum dauða barna undir eins árs fækkað um helming. Herdís segir einnig mikilvægt að börn sofi ekki upp í hjá foreldrum. Þar sé búnaður sem má ekki vera í ungbarnarúmi. Ungbarnarúmið eigi að vera ljótt og leiðinlegt. Í rúmi fullorðinna séu til dæmis koddar sem börn eigi ekki að sofa með kodda á fyrsta aldursári eða sæng sem er hönnuð fyrir fullorðna. Ungbarnasængur séu sérstaklega hannaðar fyrir börn svo þau ofhitni ekki til dæmis. Sterk kokviðbrögð barna Herdís ræddi einnig stuttlega aðferðir við að gefa börnum fasta fæðu. Undanfarið hafi margir foreldrar aðhyllst aðferð um að barnið borðar sjálft. Herdís segist virða val foreldra en hvetur þau þó til að lesa leiðbeiningar inni á vef heilsuveru. Þar sé fjallað um ákveðin matvæli og matarflokka. Til dæmis eigi börn undir fjögurra ára að forðast popp, salstengur og hnetur. „Börn eru með mjög sterk kokviðbrögð og það er út af því að þau tyggja fæðuna sína mjög illa. Þau tyggja með framtönnunum sem eru skerandi og brjóta matinn illa niður. Ef eitthvað fer aftur í öndunarveginn þá fer barnið að hósta eins og okkur svelgist á, en þessi viðbrögð eru miklu sterkari,“ segir Herdís. Þegar þau byrji svo að anda aftur þá sé hætta á því að lítið brot, af saltinu eða hnetunni, getu sogast ofan í lunga. Herdís segir stjórnleysi á Íslandi í upplýsingagjöf. Það vilji enginn taka forræði á viðurkenndum upplýsingum en til dæmis í Ástralíu hafi verið farið sú leið að merkja þær heimasíður sem séu með marktækar upplýsingar sem byggi á rannsóknum.
Svefn Börn og uppeldi Slysavarnir Heilbrigðismál Matur Bítið Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira