Í yfirlýsingu sem fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands sendi frá sér í morgun undirstrikar hún, líkt og áður, að fjármálakerfið á Íslandi standi traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi að markaðsfjármögnun greitt.
Nefndin hefur meðal annars ákveðið að halda gildi svonefnds sveiflujöfnunarauka óbreytt í 2,5 prósentum, sem er sagt í samræmi við stefnu hennar um beitingu aukans. Tekið er fram að fjármálastöðugleikanefnd muni sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.
Mikil óvissa er þó í alþjóðamálum og hafa sveiflur á alþjóðlegum fjármálamörkuðum aukist. Efnahagshorfur hér á landi gætu orðið fyrir áhrifum af þeim sökum.
Þannig fjallar nefndin í yfirlýsingu sinni um þá miklu óvissu sem er í alþjóðamálum og bendir á að sveiflur á erlendum fjármálamörkuðum hafi aukist. „Efnahagshorfur hér á landi gætu orðið fyrir áhrifum af þeim sökum. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að standa vörð um viðnámsþrótt fjármálakerfisins.“
Þá segir að viðvarandi verðbólga og háir vextir hafa skapað áskoranir fyrir heimili og fyrirtæki síðustu misseri, en verðbólgan mælist núna 3,8 prósent á meðan vextir Seðlabankans eru 7,5 prósent – hefur raunvaxtastig bankans haldist nálægt fjórum prósentum um nokkurt skeið.
„Vanskil í fjármálakerfinu eru þó lítil og efnahagsreikningar einkageirans almennt sterkir. Skuldavöxtur hefur verið hóflegur og skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru lág í sögulegum og alþjóðlegum samanburði. Þétt taumhald þjóðhagsvarúðartækja hefur stutt viðnámsþrótt fjármálakerfisins,“ að mati nefndarinnar.
Í yfirlýsingunni er jafnframt undirstrikað að fasteignaverð sé „enn hátt á flesta mælikvarða“ en dregið hafi úr hækkun þess og spenna minnkað á húsnæðismarkaði. „Umsvif í byggingariðnaði eru töluverð og útlit fyrir áþekkt framboð nýbygginga og síðustu ár. Þrátt fyrir að hægt hafi á sölu fasteigna er eiginfjárstaða byggingargeirans sterk, sem veitir honum svigrúm til að mæta mótbyr.“
Að lokum segir nefndin að rekstraráhætta fjármálainnviða sé viðvarandi áskorun.
„Fjármálastöðugleikanefnd leggur áherslu á að fjármálainnviðir séu öruggir, skilvirkir, hagkvæmir og aðgengilegir. Brýnt er að hafa yfirsýn með kerfislega mikilvægum fjármálainnviðum og kjarnainnviðum og að til staðar séu viðbragðsáætlanir við rekstraráföllum. Áfram þarf að vinna markvisst að því að auka viðnámsþrótt í greiðslumiðlun, meðal annars með því að koma á fót innlendri óháðri smágreiðslumiðlun og greiðslukortalausn án nettengingar.“