Innlent

Ís­lendingar hand­teknir á Spáni með mikið magn fíkni­efna

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þau hafa verið ákærð.
Þau hafa verið ákærð. Getty

Þrír Íslendingar voru teknir fastir af spænska þjóðvarðaliðinu í Villajoyosa fyrir vörslu mikils magns fíkniefna. Efnin fundust falin í bíl sem þeir ætluðu flytja til Ibiza.

Tvær konur og einn maður á aldrinum 24 til 48 ára hafa verið ákærð. Þau eru öll íslensk.

Staðarmiðillinn Todo Alicante greinir frá málinu en handtakan átti sér stað í lok mars. Lögreglumenn á svæðinu stöðvuðu bíl þeirra á hraðbrautinni. Ökumaðurinn hafi verið sýnilega taugaóstyrkur og sagt við lögreglumennina á ensku að þau væru að flýta sér að ná ferjunni frá Denía til Ibiza. Þau hafi helst viljað halda ferðinni áfram hið snarasta.

Þetta fannst lögreglumönnunum greinilega grunsamlegt og var ákveðið að gera ítarlega leit í bílnum. Þar inni fundust nokkrar glerkrukkur með grasi, nokkrir pokar með kókaíni, hassi, metamfetamíni og óþekktu blái dufti. Í kjölfarið var leitað á konunum tveimur og á þeim fundust enn fleiri pokar af hinum ýmsu eiturlyfjum.

Allt í allt greinir miðillinn frá því að lagt hafi verið hald á 485 grömm af kókaíni, gras, hass, metamfetamín og áðurnefnt blátt duft. Einnig var lagt hald á tæki til að lofttæma umbúðir og fleiri tæki sem lögreglu grunar að hafi átt að nota til að selja efnin.


Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×