Newcastle tók á móti Manchester United og vann afar öruggan 4-1 sigur eftir fjölda mistaka sem leiddu til marka.
Newcastle tók forystuna eftir rúmar tuttugu mínútur og fjölda færa þar á undan. Miðjumaðurinn Manuel Ugarte tapaði boltanum á slæmum stað, Kieran Trippier var snöggur að koma honum á Alexander Isak sem tók skemmtilega við og klippti hann áfram á Sandro Tonali sem skaut í fyrstu snertingu og skoraði.
Ugarte bætti upp fyrir það skömmu fyrir hálfleik með því að vinna boltann af Joelinton hjá Newcastle, sendi svo áfram á Diogo Dalot sem lagði upp jöfnunarmark Alejandro Garnacho.
Skammt var liðið af seinni hálfleik þegar Newcastle tók forystuna á ný. Jacob Murphy gerði vel og gaf sína tíundu stoðsendingu á tímabilinu, á Harvey Barnes.

Barnes var svo aftur á ferðinni á 64. mínútu og skoraði með þrumuskoti eftir að Nasser Mazraoui rann til og tapaði boltanum.
Bruno Guimares setti svo síðasta naglann í kistu gestanna þegar hann skoraði fjórða markið á 77. mínútu, aftur eftir mistök í öftustu línu gestanna. Leny Yoro gaf slaka sendingu sem Joelinton komst inn í og áframsendi á Guimares.
Newcastle fór með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Nottingham Forest og með leik til góða. Manchester United situr hins vegar í fjórtánda sæti, stigi á undan Tottenham.