Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum Safír byggingar 27. mars 2025 12:11 Glæsileg ný 436 íbúða byggð rís nú á Orkureitnum við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Íbúðirnar búa yfir nýjum lausnum í loftræstingu íbúða og byggðin er í göngufæri við Laugardalinn, Skeifuna, Glæsibæ og Múlana. Um þessar mundir er verið að reisa 436 íbúða byggð á Orkureitnum við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Þar verða kynntar til sögunnar nýjar lausnir í loftræstingu íbúða sem tryggja betra loft innandyra en áður hefur þekkst. Hver íbúð stýrir sínu eigin loftstreymi sem tryggir jákvæða orku alla daga og hefur um leið þau áhrif að verulega er dregið úr hljóðmengun í íbúðum því ekki þarf að opna glugga til að fá frískt loft.
Gæðin liggja í loftinu Meðal þess sem mun hafa jákvæð áhrif á daglegt líf íbúa á Orkureitnum er sérstakt loftræstikerfi í hverri íbúð sem gefur íbúum kost á að aðlaga loftun að eigin þörfum, óháð öðrum íbúum hússins. Loftræstikerfið tryggir betra og heilsusamlegra loft innandyra. Klippa: Ný 436 íbúða byggð rís á Orkureitnum í Reykjavík. Ný lausn dregur verulega úr hljóðmengun Á Orkureitnum hefur sérstaklega verið hugað að góðri hljóðvist. Þar sem hver íbúð er útbúin eigin loftræstikerfi þarf ekki að opna glugga til að fá inn ferskt loft sem hefur mjög jákvæð áhrif á hljóðvistina innandyra. Það dregur verulega úr hljóðmengun frá nærliggjandi umferðargötum sem eykur vellíðan og lífsgæði íbúanna. Betra loftflæði tryggir betri byggingar Einnig má nefna að allar íbúðir innihalda sérstakan búnað sem minnkar verulega álag í kringum glugga og þar með hættu á myglu vegna leka. Þessi búnaður lágmarkar einnig rakamyndun og getur fyrirbyggt ótímabært viðhald og viðgerðir. Auk þess eru allir gluggar á Orkureitnum sérstaklega álagsprófaðir fyrir leka eftir uppsetningu. Endurnýting orku og meiri sparnaður Til að bæta enn frekar loftgæði innan íbúða og spara um leið bæði orku og peninga, er ferskt og kalt loft dregið inn í bygginguna og hitað með lofti sem skilað er til baka úr íbúðinni. Þessi varmaskipti skila um 80% varmaendurnýtingu sem leiðir af sér um 50% minni heitavatnsnotkun. Frábær staðsetning Nýja byggðin á Orkureitnum er staðsett á einstökum stað skammt frá Laugardalnum með öllum sínum útivistar-, íþrótta- og afþreyingarmöguleikum. Orkureiturinn er jafnframt í miðpunkti fjölbreyttrar verslunar og þjónustu en Skeifan, Glæsibær og Múlarnir eru í aðeins 5 til 15 mínútna göngufjarlægð. Einnig er stutt í leikskóla og grunnskóla sem hentar vel fjölskyldufólki. Svansvottaðar íbúðir bæta hag íbúa Markmiðið er allar íbúðir á Orkureitnum hljóti Svansvottun sem er hið opinbera umhverfismerki Norðurlandanna. Svansvottaðar íbúðir hafa mikla þýðingu fyrir íbúa en það er meðal annars trygging þess að engin skaðleg efni eru notuð við byggingu þeirra sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu og vellíðan. Auk þess er eitt af skilyrðum Svansvottunar að íbúðir standist strangar kröfur um dagsbirtuútreikninga. Í forhönnun á Orkureitnum voru sérstakar breytingar gerðar eins og að hækka lofthæð á neðri hæðum, stækka og færa til glugga og færa til svalir til að uppfylla þessi skilyrði. Íbúðir í A-áfanga eru komnar í sölu og á næstunni fara íbúðir í D-áfanga í sölu.
Hús og heimili Byggingariðnaður Mest lesið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira