„Ég nota innsæið mitt mjög mikið enda er innsæið ekkert tabú“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 19. mars 2025 07:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, segist nota innsæið sitt meira og meira eftir því sem hún verði eldri. Það kalli oft á ákveðið hugrekki og þor að hlusta á innsæið sitt enda hefur hún eins og allir aðrir oft lent í því að fylgja ekki innsæinu sínu eftir og sjá síðan eftir því. Vísir/RAX „Ég nota innsæið mitt mjög mikið enda er innsæið ekkert tabú. Nota það meira og meira eftir því sem ég verð eldri,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, ein fjölmargra kvenna sem næstkomandi laugardag mun ræða um innsæið á UAK ráðstefnunni 2025.
Þorgerður segir það oft kalla á ákveðið hugrekki að þora að hlusta á innsæið sitt. „Við þurfum að þora að treysta okkur sjálfum; að hafa sjálfstraustið til að sitja í sjálfum okkur vitandi það að það er ekkert sem við hugsum sem er endilega neitt vitlaust. Málið snýst frekar um að þora að tala við okkur sjálf, jafnvel skora okkur sjálf á hólm,“ segir Þorgerður og bætir við: Innsæið hefur að minnsta kosti reynst mér vel í mörgum málum. Í mörgum verkefnum í pólitíkinni og almennt í erfiðum verkefnum hef ég smátt og smátt lært betur að taka innsæið meira inn í breytuna. Þannig hefur innsæið hjálpað mér í gegnum ákveðna skafla.“ En manstu eftir því að hafa ekki fylgt eftir innsæinu þínu? „Já.“ Og hvað gerist þá? „Þá tekur við tímabundið tímabil með langvarandi óþægindum,“ svarar Þorgerður og brosir. UAK ráðstefnan 2025 verður haldin á laugardaginn kemur. Yfirskriftin að þessu sinni er „Innri áttavitinn; Leiðir liggja til allra átta.“ Í dag og á morgun ræðir Atvinnulífið við tvær forystukonur um innsæið og hvernig það hefur nýst þeim að þora að hlusta á sinn eiginn innri áttavita. Hvað er þetta innsæi? Það verður án efa margt um manninn á árlegu ráðstefnu UAK sem nú verður haldin í ráðstefnusal The Reykjavík Edition. Enda fjölbreyttur hópur flottra kvenna sem ætla að ræða um innsæið og hvernig það hefur nýst þeim í gegnum tíðina. Auk Þorgerðar má til dæmis nefna Ingunni Eiríksdóttur frumkvöðli, fyrirsætu og fjárfesti, Nínu Dögg Filippusdóttur leikkonu, handritahöfund og kvikmyndaframleiðanda, stofnendur Fortuna Invest þær Aníta Rut, Kristín Hildur og Rósa, Margrét Pála Ólafsdóttir höfundur Hjallastefnunnar, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir forstjóri Varðar og margar fleiri, sjá hér. En hvað er þetta innsæi eiginlega? „Ég tengi innsæið svolítið uppeldinu því mamma og pabbi ólu okkur systurnar þannig upp að þora að treysta okkur sjálfum og þora að sitja í sjálfum okkur. Innsæið hefur því aldrei verið neitt tabú fyrir mér. Ég held að reynsla og þekking fléttist inn í innsæið okkar. Innsæið sé því samþætting af þeirri reynslu sem við öflum okkur í lífinu. Enda eflaust margt ólíkt með því hvað ég var að hugsa 15 ára miðað við í dag eða hvernig ég myndi nýta innsæið mitt í alls kyns verkefnum núna, aðstæðum eða samtölum.“ Það sem Þorgerður segir hjálpa mest við innsæið er að taka betri ákvarðanir. „Í mínu pólitíska lífi og í prívat lífinu því ef við hlustum ekki á innsæið okkar erum við líkleg til að taka ekki jafn ígrundaðar ákvarðanir.“ Í dagsins amstri þurfi hins vegar að tryggja að við hlustum á innsæið. „Við getum hugsað alla hluti fram og til baka en eigum ekki að vera feimin né smeyk við þennan innri áttavita. Því innsæið er vinur þinn og það að hlusta á innsæið getur skipt sköpum,“ segir Þorgerður. Sjálfsefinn sé þó bardaginn sem flestir glími við. „Síðast í gær fannst mér fullt af þungum hlutum vera í gangi og þegar svo er getum við farið að efast um okkur sjálf. Er ég að gera nóg? Þarf ég að gera meira?“ En þá er gott að gefa innsæinu smá svigrúm. „Í gærkveldi fór ég í göngutúr með dóttur minni sem var æðislegt. Náði þá að setjast aðeins í sjálfa mig, vaknaði síðan í rosa stuði í morgun og leið allt öðruvísi. Enda kláraði ég fullt af hlutum á ríkisstjórnarfundinum í morgun,“ segir Þorgerður og hlær. Þorgerður Katrín er ein þeirra fjölmörgu forystukvenna sem mun ræða innsæið og innri áttavitann á UAK 2025 sem haldin verður á laugardaginn. Þorgerður segir mikilvægt að gefa innsæinu svigrúm; fyrir hana virki það til dæmis vel að horfa aðeins út um gluggann í vinnunni eða að fara í göngutúr. Vísir/RAX Styrkurinn sem felst í að hlusta Það geta allir sagt frá mómentum þar sem þeir hugsa eftir á; Oh… ég vissi það. Ég vissi að ég hefði átt að gera þetta svona eða hinsegin….. Þorgerður Katrín er þar engin undantekning. „Ég man eftir mörgum dæmum um að hafa ekki hlustað á innsæið mitt. Og oft upplifað það eftir á hversu pirrandi og vont það er eftir á að hafa ekki gert það.“ Í kynningu um ráðstefnuna segir hins vegar: Við viljum hvetja gesti til að staldra við, hlusta á innsæið og skoða þau gildi sem móta stefnu þeirra í lífinu. Þorgerður segir það ekki þurfa að vera flókið að heyra í innsæinu. Í hennar tilviki virki það oft fínt að fara út í göngutúr með hundinn. Eða einfaldlega að gefa sjálfri sér andrými eitt augnablik. „Á þungum dögum geta komið augnablik þar sem ég sit á skrifstofunni minni og einfaldlega gef mér smá tíma til að horfa út um gluggann og yfir sundin og næ þá með því að segja við sjálfa mig: Róaðu þig nú aðeins. Ekki alltaf vera með svipuna á lofti við sjálfa þig,“ segir Þorgerður og bætir við: ,,Og með því að gera þetta eitt augnablik kemst ég oftast að því að staðan er ekkert svo slæm. Hún er meira að segja bara mjög fín því ég er að leggja mig fram og er að gera mikið meira en nóg.“ Þorgerður segir konur samt þurfa að passa sig sérstaklega. „Við förum öll í gegnum tímabil í lífinu þar sem við erum að reyna að hlaupa hraðar og erum með marga bolta á lofti. Sjálf byrjaði ég til dæmis ung í pólitíkinni og þekki það að vera ófrísk í pólitík eða í pólitík með heimili og þrjú börn líka,“ segir Þorgerður en bætir við: „En konur frekar en karlar þjást af ákveðnu samviskubiti; þar sem við förum að velta fyrir okkur hlutum eins og hvort við séum ekki að verja nógu miklum tíma með börnunum okkar eða að gera nógu mikið með þeim eða fyrir þau.“ Þannig sé konum oft tamara að vera jafnvel enn harðari við sjálfan sig en margur karlpeningurinn. „Bara síðast um daginn var góð vinkona mín að segja mér að hætta að vera alltaf svona hörð við sjálfa mig.“ En hvað geta konur þá gert til að tryggja að þær gleymi ekki að hlusta á innsæið sitt? „Ég myndi byrja á því að segja: Ýtið helvítis samviskubitinu út af borðinu.“ Það var ekkert verið að tala um innsæið eða kvenlæg gildi þegar Þorgerður byrjaði í pólitík. Sem hún segir samt skipta miklu máli og ef eitthvað er, þurfi konur fyrst og fremst að byrja á því að ýta þessu blessaða samviskubiti út af borðinu. Þá sé engin ástæða til að reyna að gera hlutina eins og strákarnir, það hafi hún lært með aldrinum.Vísir/RAX Kvenlægu gildin svo sterk Þorgerður segir margt hafa verið öðruvísi þegar hún byrjaði í pólitík. Það var ekki verið að tala um kvenlæg gildi eða innsæi þegar ég var að byrja. Því ég kem af kynslóðinni sem fékk frekar að heyra: Haltu kjafti og vertu dugleg!“ Fyrir ungar konur í karlægum heimi var algengasta aðferðin sú að konur reyndu að gera hlutina eins og karlarnir. „Ég hélt því að maður þyrfti alltaf að vera að olnbogast einhvern veginn áfram. Að vera alltaf í slag eða almennt að gera hlutina eins og strákarnir. Sem ég ofmat og lærði síðar að er ekki málið. Ekki að karlmenn séu ekki oft að gera hlutina á góðan hátt. En kvenlægu elementin okkar eru mildari og ef ég hefði oftar leyft þeim að njóta sín, hefði ég verið fyrr að átta mig á að það þarf ekkert alltaf að vera í einhverjum slagsmálum.“ Sem dæmi nefnir Þorgerður síðustu kosningar. Sem hún telur hafa dregið vel fram hin kvenlægu mildari gildi. „Mér fannst þetta langskemmtilegasta kosningabaráttan sem ég hef tekið þátt í. Og hvers vegna ætli það hafi verið? Jú, vegna þess að hún var svo jákvæð. Og þegar hlutirnir eru jákvæðir þá eru þeir skemmtilegir. Við tókum að minnsta kosti ákvörðun um það snemma að tala ekki neikvætt um neinn og ég held að það hafi tekist að minnsta kosti 90%.“ Horfandi í baksýnisspegilinn segir Þorgerður. „Ég hefði leyft þessum kvenlægu gildum sem við konur búum yfir að njóta sín meiri. Því þau nýtast svo vel. En þá skiptir líka miklu máli að við séum duglegar að hlusta á innri áttavitann okkar, því hann tryggir betur að ekki sé hægt að hræða okkur til þöggunar.“ En kvenlægu gildin og þau mildari skipta líka máli í stóru myndinni. „Ekki síst nú þegar við sjáum hvernig heimsmálin eru að þróast. Þar sem allt snýst um varnir og öryggi Til að verja friðinn og frelsið. Þar skipta þessi gildi sannarlega máli. Við hérna á Íslandi erum rík af frábærum konum sem eru sérfræðingar í þeim málaflokki. Það er dýrmætt því raddir kvenna eru gríðarlega mikilvægar á þessu sviði sem öðrum,“ segir Þorgerður og bætir við að á tímum sem þessum sé mikilvægara en nokkru sinni að halda á lofti jafnréttismálum. Þar erum við Íslendingar á heimavelli.
Jafnréttismál Geðheilbrigði Starfsframi Góðu ráðin Tengdar fréttir Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Það er oft hlegið í samtalinu við Hafdísi Huld Björnsdóttur framkvæmdastjóra og stofnanda ráðgjafafyrirtækisins RATA. 3. mars 2025 07:05 Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Það reyndist erfiðara fyrir Grace Achieng frá Keníu að fá gott starf við hæfi á Íslandi, en að vera uppgötvuð af Vogue fyrir íslensku fatalínuna sína, Gracelandic. 21. nóvember 2024 07:01 Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ „Viðburðurinn hófst ekki fyrr en klukkan átta um kvöldið en klukkan rétt rúmlega sjö streymdu konur einfaldlega á staðinn þannig að við hugsuðum bara með okkur Vá! Hvað mætingin er góð,“ segir Sóley Björg Jóhannsdóttir varaformaður UAK um viðburð sem félagið stóð fyrir síðastliðið þriðjudagskvöld. 12. september 2024 07:03 Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ „Ég held að uppeldið hafi skipt þar miklu. Foreldrar mínir hafa alltaf sagt að ég gæti gert allt sem ég vil. Sem þó var ekkert alltaf auðvelt. Til dæmis ætlaði ég að verða læknir en ákvað að taka pásu í háskóla og stefna að því að verða atvinnumaður í CrossFit,“ segir Annie Mist Þórisdóttir, fyrrum heimsmeistari í CrossFit og einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Dottir Skin. 11. september 2024 07:01 „Ég einfaldlega spurði kennarann: Ertu ekki að djóka?!“ Þann 11.maí síðastliðinn, hélt París Anna Bergmann, sextán ára nemandi við Menntaskólann á Akureyri erindi á ráðstefnu félagi Ungra athafnakvenna, UAK. 27. maí 2024 07:01 Mest lesið Macland gjaldþrota: „Bruninn fór með þetta“ Viðskipti innlent Meina verðlagseftirlitsmönnum inngöngu Neytendur Indó ríður aftur á vaðið Neytendur Óskiljanlegt að ASÍ beini spjótum sínum að lítilli hverfisverslun Neytendur Vaxtalækkunarferli Seðlabankans heldur áfram Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja vaxtaákvörðunina Viðskipti innlent „Ég nota innsæið mitt mjög mikið enda er innsæið ekkert tabú“ Atvinnulíf Markaðsmála- og upplifunardeild Isavia lögð niður Viðskipti innlent Þröng á þingi og þriggja tíma ferð vegna þrjátíu prósenta afsláttar Neytendur Lára nýr samskiptastjóri Reita Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég nota innsæið mitt mjög mikið enda er innsæið ekkert tabú“ Hermann í Kemi: „Kom mér mjög á óvart að verða svona ástfanginn“ Kærastan grjóthörð með svefntímann kvölds og morgna Unga fólkið greinilega að hugsa um sjálfbærnimálin „Hvernig hefðu amma og afi gert þetta?“ Vinnufélagarnir: Kjaftakerlingin, dramadrottningin, sá svartsýni og fleiri Síðasta hláturskast tók verulega á grindarbotninn Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum Að taka því ekki persónulega hvernig týpa þinn yfirmaður er Fjórar týpur af yfirmönnum: Hver er þín týpa? Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Fleiri hlutastörf: Ríkið greiðir nú þegar 75% launa sem mótframlag Breytingar í framkvæmdastjórateymum oft nauðsynlegar Sjúkur í Downton Abbey og með unglingastæla á kvöldin Selfossvinir og afar sem velta milljörðum Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ Að hringja sig inn veik á mánudögum Fermingarmyndin ekki til útflutnings Rauðu flöggin: Þú vilt ekki vinna fyrir svona stjórnanda Úrelt kerfi: „Jafnvel vitað fyrirfram að ráðningin verði kærð“ „Þau samtöl eru oft mjög erfið og jafnvel særandi fyrir umsækjanda“ Sjá meira
Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Það er oft hlegið í samtalinu við Hafdísi Huld Björnsdóttur framkvæmdastjóra og stofnanda ráðgjafafyrirtækisins RATA. 3. mars 2025 07:05
Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Það reyndist erfiðara fyrir Grace Achieng frá Keníu að fá gott starf við hæfi á Íslandi, en að vera uppgötvuð af Vogue fyrir íslensku fatalínuna sína, Gracelandic. 21. nóvember 2024 07:01
Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ „Viðburðurinn hófst ekki fyrr en klukkan átta um kvöldið en klukkan rétt rúmlega sjö streymdu konur einfaldlega á staðinn þannig að við hugsuðum bara með okkur Vá! Hvað mætingin er góð,“ segir Sóley Björg Jóhannsdóttir varaformaður UAK um viðburð sem félagið stóð fyrir síðastliðið þriðjudagskvöld. 12. september 2024 07:03
Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ „Ég held að uppeldið hafi skipt þar miklu. Foreldrar mínir hafa alltaf sagt að ég gæti gert allt sem ég vil. Sem þó var ekkert alltaf auðvelt. Til dæmis ætlaði ég að verða læknir en ákvað að taka pásu í háskóla og stefna að því að verða atvinnumaður í CrossFit,“ segir Annie Mist Þórisdóttir, fyrrum heimsmeistari í CrossFit og einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Dottir Skin. 11. september 2024 07:01
„Ég einfaldlega spurði kennarann: Ertu ekki að djóka?!“ Þann 11.maí síðastliðinn, hélt París Anna Bergmann, sextán ára nemandi við Menntaskólann á Akureyri erindi á ráðstefnu félagi Ungra athafnakvenna, UAK. 27. maí 2024 07:01