Vestlæg átt leikur um landið Atli Ísleifsson skrifar 11. mars 2025 07:10 Hiti verður þrjú til níu stig yfir daginn, einna mildast á Suðausturlandi. Vísir/Vilhelm Skammt suðvestur af landinu er nú kyrrstæð hæð sem stýrir veðrinu á landinu á næstunni. Vestlæg átt leikur því um landið og má sums staðar reikna með strekkings vindi norðantil. Hins vegar verður mun hægari vindur syðra.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það verði skýjað og sums staðar lítilsháttar súld, en bjartviðri suðaustanlands. „Léttir víða til með morgninum og allvíða léttskýjað seinnipartinn. Svipað veður á morgun, miðvikudag og hitatölur þokkalegar þegar tekið er mið af árstíðinni, en hiti verður yfir daginn 3 til 9 stig, einna mildast á Suðausturlandi. Víða má búast við vægu næturfrosti, einkum þar sem vindur er hægur og bjart yfir,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðvestlæg átt, 5-13 m/s, hvassast úti við sjávarsíðuna. Skýjað að mestu, en yfirleitt bjart suðaustantil. Hiti 1 til 9 stig að deginum, mildast syðst. Á fimmtudag: Norðvestan 8-13 m/s við suðurströndina, en annars hæg breytileg átt. Dálítil él norðaustantil, en bjart með köflum sunnan- og vestanlands. Heldur svalara í bili. Á föstudag: Suðvestan 8-15 m/s og sums staðar dálítil væta, einkum vestantil, en að mestu bjart austanlands. Hiti 1 til 6 stig. Á laugardag: Suðvestanátt með dálítilli vætu um landið vestanvert, en yfirleitt bjart um landið norðaustanvert. Milt um land allt. Á sunnudag: Sunnanátt og væta af og til vestast, annars þurrt og bjart veður austantil. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Útlit fyrir suðvestanátt en annars svipað veður áfram.
Veður Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Sjá meira