Glötuðu tækifærin Guðmundur Ragnarsson skrifar 27. febrúar 2025 14:33 Við að fylgjast með nýjustu uppákomunni í kringum Ragnar Þór Ingólfsson þingmanns Flokks fólksins og fyrrverandi formann VR. Kemur upp í huga manns hvort það sé ekki vegna svona óheiðarlegra og ómerkilegra einstaklinga sem staða samfélagsins er eins og hún er. Ég velti því fyrir mér hvort ekki væri full ástæða fyrir fjölmiðla að fara yfir allt bullið sem komið hefur fram frá Ragnari Þór og Vilhjálmi Birgissyni frá 2008 og athuga hvort einhver vitræn tillaga hafi komið fram frá þeim sem hefði verið hægt að nota til að ná tökum á efnahagsvandamálum og auka kaupmátt launafólks. Ég fullyrði að svo sé ekki. Frá 2008 þegar kaupmáttur launa hrundi í hruninu og fram til 2018 þegar náðist að koma kaupmætti launa í þær hæðir sem hann er í dag voru þeir félagar og nokkrir aðrir meðreiðarsveinar þeirra með endalausa fullyrðingar um að ASÍ og forysta þeirra stéttarfélaga sem stóðu að gerð kjarasamninga á þessu tímabili væru að svíkja launafólk og væru þeirra mesti óvinur. Djöfull í mannsmynd Áróður þeirra félaga gekk út á það að Gylfi Arnbjörnsson þáverandi forseti ASÍ væri djöfull í mansmynd sendur til að kvelja og svíkja íslenskt launafólk. Þegar þeir með óheiðarleika og viðbjóði tókst að hrekja Gylfa í burtu, tók seðlabankastjóri við sem fulltrúi þessara afla og allur áróðurinn hefur verið á hann síðan. Þó Gylfi færi héldu sömu vandamálin áfram í efnahagsmálunum, ætli þeir séu búnir að fatta það?Þó seðlabankastjóri verði rekin mun ekkert breytast. Vitrænt vinnumarkaðsmódel sem var verið að reyna að koma á var eyðilagt sem á eftir að koma í bakið á okkur með verðbólguskoti vegna innistæðulausra kjarasamninga í framtíðinni í höfrungahlaupinu gamalkunna sem nú er hafið. Það er líka full ástæða að halda því til haga að Bjarg íbúðarfélag var stofnað og komið af stað áður en Ragnar Þór komst til valda sem formaður VR þó hann hafi ítrekað reynt að eigna sér það. Frá því að Gylfi fór frá sem forseti ASÍ hefur ekkert gerst á vettvangi ASÍ vegna innbyrðis deilna og óhæfra einstaklinga án hugmynda, raunhæfra lausna og athyglissýki. Hvað kosta Popúlistar okkur Hvað ætli þessir einstaklingar Ragnar Þór og Vilhjálmur og þeirra meðreiðarsveinar séu búin að kosta launafólk mikið með bullinu í sér, engum raunhæfum lausnum eða framtíðarsýn. Við erum búin að tapa ómældum tækifærum frá 2018 til að komast í raunhæfan stöðuleika á vinnumarkaðnum og leggja um leið grunn að efnahagslegum stöðuleika í þessu landi. Með launahækkunum sem myndi trygga raunverulega kaupmáttaraukningu við gerð kjarasamninga. Fólk borðar ekki kaupmátt heyrði ég Ragnar Þór segja fyrir ekki svo mörgum árum sem undirstrikaði það að hann skildi ekki hugtakið aukin kaupmáttur. Þegar Ragnar kom Ólafíu B. Rafnsdóttur frá sem formanni VR var það gert með þvílíku siðleysi og óheiðarleika eins og öll hans vinnubrögð bera merki. Það er full ástæða að rifja þetta upp því nokkrir sem nú eru í forystu í verkalýðhreyfingunni tileinkuðu sér þessi vinnubrögð, einstaklingar af sama kalaberi með engar lausnir. Nóg til fyrir alla Sem formaður fjárlaganefndar mun Ragnar ekki vera í nokkrum vanda að deila út fjármunum enda nóg til eins og ítrekað hefur verið haldið fram. Það sem veldur mér hinsvegar mestum áhyggjum er hvernig hægt sé að setja svona einstakling í þessa nefnd sem ekki skilur nafnvexti, raunvexti og að fjármunir verði að halda verðgildi sínu annars er einhver að tapa fjármunum. Vonandi að hann komi ekki með hugmyndafræði sína þarna inn um að nota sparnað almennings til að rétta af halla ríkissjóðs. Enda eru það hinir vondu fjármagnseigendur þessa lands og eiga allt vont skilið eins og hann hefur talað. Að sýna gott fordæmi Ég velti því fyrir mér hvort hann muni ekki sýna gott fordæmi og fara með fjölskylduvarasjóðinn eins og hann kallar starfslokagreiðslurnar frá VR og láni þessa fjármuni inn í Blæ íbúðarfélag á föstum lágum vöxtum til dæmis 1,5 prósent til tíu ára án verðtryggingar. Það verður spennandi að sjá hvert raunvirði sjóðsins verður þá, þegar við verðum búin að taka eitt höfrungahlaupið í kjarasamningum á vinnumarkaðnum með öllu því sem því fylgir, veðbólgu og háum vöxtum. Það er lágmarkið að menn séu samkvæmir sjálfum sér einu sinni, það væri tilbreyting í því. Hvernig er hægt að stoppa allt bullið? Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé full ástæða fyrir okkur að stofna samtök venjulegs fólks til að vinna á móti öllu því bulli sem endalaust er sett fram og engin virðist fara í að hrekja og benda á rangfærslurnar sem ganga ekki upp. Þeir sem það geta segja að þeir nenni ekki að fara fram og benda á allt bullið, því það er ekki hægt að taka rökræðu við þessa einstaklinga. Þeirra viðbrögð eru alltaf þau sömu að fara í manninn. Hann og jafnvel hans fjölskylda svívirt á samfélagsmiðlum. Þessir einstaklingar segja það sé ekki hægt að taka málefnalega umræðu við svona siðlaust og óheiðalegt fólk, því það hefur ekki getuna til að færa rök fyrir bullinu í sjálfum sér. Samtök venjulegs fólks sem alltaf þarf að gefa eftir og borga, en hefur engan málsvara til að standa á móti og verja sína hagsmuni. Höfundur er fyrrverandi formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ragnarsson Stéttarfélög Mest lesið Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar