„Að gera þetta svona rétt fyrir sauðburð þykir okkur mjög grimmilegt“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. febrúar 2025 19:22 Steinunn Árnadóttir segir vinnubrögð Matvælastofnunar ekki líðandi. Kindurnar hefði átt að senda mun fyrr til slátrunar en ekki svo skömmu fyrir sauðburð. Dýraverndunarsinni gagnrýnir að Matvælastofnun sendi um 200 kindur af bænum Höfða í Þverárhlíð til slátrunar rétt fyrir sauðburð. Tímasetning aðgerðanna sé grimmileg. Yfirdýralæknir segir Matvælastofnun ekki tjá sig um einstaka mál en segir þó að loks sjái fyrir endann á krónísku dýravelferðarmáli í Borgarfirðinum.
Steinunn Árnadóttir, organisti og dýraverndunarsinni, vakti athygli á því við fréttastofu að til stæði að slátra rúmlega 200 kindum af bænum Höfða í Þverárhlíð í sláturhúsinu í Borgarnesi. Hún hefur áður vakið athygli á vanbúnaði dýra á bænum og lent í átökum við ábúendur á Höfða. Núna segir Steinunn ekki við ábúendur að sakast heldur við Matvælastofnun sem sendi kindurnar alltof seint í sláturhúsið. „Samfélagið er mjög reitt yfir því að það sé verið að flytja þær svona seint, það er alveg komið að sauðburði. Þær eru komnar niður í Borgarnes og búið að setja þær inn í sláturhús. Þeim verður lógað í fyrramálið, þær verða skornar, settar upp á gám og fluttar í förgun,“ segir Steinunn. „Matvælastofnun bregst svo seint við og það bitnar náttúrulega á dýrinu. Þetta eru svo ámælisverð vinnubrögð hjá þeim að vera ekki búin að þessu fyrir lifandis löngu. Að gera þetta svona rétt fyrir sauðburð þykir okkur mjög grimmilegt,“ segir hún. Getur ekki þagað yfir vinnubrögðum stofnunarinnar Steinunn fullyrðir að stutt sé síðan um 200 öðrum kindum var slátrað á bænum. Matvælastofnun hafi gert samning við ábúendur jarðarinnar um að þau mætti hafa einhverja tugi kinda á jörðinni en að slátra þyrfti restinni. „Ábúendur hafa verið samvinnuþýð, það er ekki við þau að sakast í þetta skiptið. Nú er það bara Matvælastofnun sem bregst seint við,“ segir Steinunn. „Eftir allt sem á undan er gengið, að stofnunin skuli enda þetta svona, það er ekki líðandi. Þess vegna getur maður ekki þagað yfir því.“ Aldrei neitt marktækt verið gert í málinu Steinunn segir erfitt að vita hvort um sé að ræða síðasta skiptið sem svo mörgum kindum er slátrað á bænum. Enginn viti raunverulegan fjölda kindanna sem hafi verið eftirlitslausar lengi. „Síðasta vor sagði Þórunn, sem er ábúandi á jörðinni, í fréttum að þau ættu 300 kindur og að 200 færu í sauðburði. Það er ekki alveg rétt því þarna eru 200 kindur á vagni sem á að slátra í fyrramálið. Matvælastofnun ætti fyrir löngu að gera tölu og fylgjast betur með bænum. Það hefur aldrei verið gert neitt marktækt í þessu,“ segir hún. „Síðastliðið vor voru enn þá kindur að bera úti í vegkanti þannig þetta er búið að vera langur tími sem það hefur fengið að líðast að lög um dýravelferð séu brotin,“ segir Steinunn. Árið 2002 var fyrst farið í mjög stóra aðgerð á bænum þar sem um 200 kindur voru aflífaðar. Síðan þá hafa aðrir bændur og íbúar í nágrenni við jörðina ítrekað kvartað yfir aðbúnaði kindanna, lausagöngu þeirra og aðgerðarleysi ábúenda jarðarinnar og yfirvalda. Sjá einnig: Meint dýraníð látið viðgangast í áraraðir Krónískt dýravelferðarmál sem loksins sjái fyrir endann á Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, segir um erfitt mál að ræða í Borgarfirðinum sem megi flokka sem krónískt dýravelferðarmál. Hún gat ekki greint frá því hve mörgum dýrum stæði til að slátra en að undanfarið hefði verið „fækkun í gangi“ og loksins sjái fyrir endann á málinu. „Við viljum sannarlega taka á málum sem hafa dregist á langinn og hefur verið mikil þörf að bregðast við,“ segir Þóra. Hún segir alltaf áhyggjuefni þegar líði að því að kindurnar beri. Ákvæði í reglugerðum séu skýr um hvenær megi flytja kindur og sé miðað við að dýrið sé ekki lengra gengið en níutíu prósent meðgöngu. „Það er skylda okkar að fara ekki út fyrir lagarammann. Okkar aðgerðir snúa að því að tryggja velferð dýra,“ segir Þóra. Þessi orð Þóru voru borin undir Steinunni sem efaðist um að lögum væri framfylgt. „Fyrir þremur vikum síðan tók eftirlitsdýralæknir á vegum Mast með sér fóstur sem voru um það bil fullburða til rannsóknar. Sú kind var bara komin að burði og þessar kindur eru um það bil að fara að bera, ef þær hafa ekki borið á leiðinni,“ segir Steinunn. Bannað að flytja fengin dýr en ekki að aflífa þau Yfirlýsing Steinunnar um fullburða fóstrin sem eftirlitsdýralæknir tók með sér var svo borin undir Þóru og hún spurð hvort það hefði samhæfst reglugerðum um níutíu prósent meðgöngu. Þóra sagði að Matvælastofnun greindi ekki frá einstaka málum, sérsraklega ekki á meðan þau væru enn í gangi. Reglugerð segði að ekki mætti flytja dýr ef þau væru gengin níutíu prósent eða meira. Hún sagði að flutningsfólki bæri skylda til að meta fengin dýr á staðnum hverju sinni. Ef vafi léki á að kindurnar væru of langt gengnar þá yrðu þær ekki fluttar. „Lagaramminn bannar ekki aflífun á fengnum dýrum, lagaramminn bannar flutning á dýrum sem eru gengin 90 prósent eða meira. Matið verður að eiga sér stað á fénu áður en það er flutt og ég er sannfærð um að það eftirlitsfólk sem er á staðnum hverju sinni gera sitt ítrasta til þess að leggja mat á það,“ segir Þóra. Dýr sem vafi leikur um eigi alltaf að njóta vafans, að sögn Þóru. „Við fylgjum öllum dýravelferðarmálum þétt eftir“ Aðspurð út í meintan samning Matvælastofnunar við ábúendur jarðarinnar ítrekaði Þóra að Matvælastofnun gæti ekki greint frá upplýsingum í einstaka málum. „Samningar eiga sér almennt ekki stað í velferðarmálum og ef þeir eiga sér stað þá upplýsir Matvælastofnun ekki um þá,“ segir hún. Þóra segir markmið Matmælastofnunarinnar vera að tryggja velferð dýra. „Það mun vera haft eftirlit með öllum þeim dýrum sem eru haldin, á hvaða bæ sem þau eru haldin, ef ástæða þykir til. Við fylgjum öllum dýravelferðarmálum þétt eftir,“ segir Þóra.
Borgarbyggð Dýr Dýraheilbrigði Tengdar fréttir Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Dýralæknir sem kannaði aðstæður á sauðfjárbúi í Borgarfirði sem MAST fylgist sérstaklega með segir aðbúnað nokkurra dýra þar óviðunandi. Hún gagnrýnir að slíkt eigi sér stað á sama tíma og stofnunin segist vera að sinna skyldum sínum í málinu. 14. maí 2024 13:49 Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Settur yfirdýralæknir hjá Mast segir að stofnunin hafi farið fram á að sauðfjárbú í Borgarfirði geri talsverðar úrbætur í búskapnum. Þá hafi ábúendum þar verið gert að fækka fé en erfitt sé að gera það í miðjum sauðburði. Hann telur ástandið á bænum ekki eins slæmt og menn vilja vera láta. 13. maí 2024 16:00 Mest lesið Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Fleiri fréttir Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Atvinnuþátttaka innflytjenda meiri en Íslendinga en fjárhagsstaða verri Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Framsóknarflokkurinn mælist aftur inni Áttatíu starfsmenn í biðstöðu og HM-hópur Íslands Viðreisn býður fram undir eigin merkjum í Árborg Ekið á hjólreiðamann og hann fluttur á bráðamóttöku Val á þingflokksformanni bíður betri tíma Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Sjá meira
Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Dýralæknir sem kannaði aðstæður á sauðfjárbúi í Borgarfirði sem MAST fylgist sérstaklega með segir aðbúnað nokkurra dýra þar óviðunandi. Hún gagnrýnir að slíkt eigi sér stað á sama tíma og stofnunin segist vera að sinna skyldum sínum í málinu. 14. maí 2024 13:49
Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Settur yfirdýralæknir hjá Mast segir að stofnunin hafi farið fram á að sauðfjárbú í Borgarfirði geri talsverðar úrbætur í búskapnum. Þá hafi ábúendum þar verið gert að fækka fé en erfitt sé að gera það í miðjum sauðburði. Hann telur ástandið á bænum ekki eins slæmt og menn vilja vera láta. 13. maí 2024 16:00