Lífið

Rappar um vímu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Justin Bieber á góðri stundu við endalok Formúlu 1 kappaksturs í Las Vegas í nóvember 2023.
Justin Bieber á góðri stundu við endalok Formúlu 1 kappaksturs í Las Vegas í nóvember 2023. EPA-EFE/ETIENNE LAURENT

Kanadíski söngvarinn Justin Bieber rappar um að vera í vímu í nýju myndbandi á samfélagsmiðlinum Instagram svo athygli vekur. Erlendir slúðurmiðlar segja þetta ekki síst áhugavert í ljósi þess að söngvarinn hefur ávallt þvertekið fyrir að nota vímuefni.

Í umfjöllun bandaríska slúðurmiðilsins PageSix um málið kemur fram að söngvarinn hafi birt myndbandið á Instagram í gær. Þar má sjá hann beran að ofan í góðu skapi að borða snakk. „Ég flýg eins og fljúgandi maður, ég flýg hátt eins og sekkjapípa, ég er í vímu eins og vondur maður,“ syngur söngvarinn meðal annars á ensku.

PageSix slær því upp að myndbandið sé athyglisvert í ljósi þess að talsmaður söngvarans hafi nýverið gefið frá sér yfirlýsingu þar sem fréttaflutningi af meintri vímuefnanotkun söngvarans og bágu andlegu ástandi hans er alfarið hafnað. Talsmaðurinn sagði að árið hefði verið söngvaranum erfitt þar sem hann hefði kvatt sambönd sem hefðu ekki lengur gagnast honum.

Hann og eiginkona hans Hailey Bieber væru á fullu að annast kornungan son þeirra Jack Bieber, sem hefði átt erfitt með að sofna. Fram kemur í umfjöllun miðilsins að sögusagnir hafi farið á kreik um bágborið ástand söngvarans eftir að myndir birtust af honum þar sem mátti sjá hann með heljarinnar bauga undir augum. Segir talsmaður söngvarans að á viðkomandi myndum hafi söngvarinn nýlokið heilli nótt í upptökuveri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.