Sigurður stýrir báðum liðum Keflavíkur Valur Páll Eiríksson skrifar 8. febrúar 2025 14:46 Sigurður Ingimundarson stýrir bæði karla- og kvennaliði Keflavíkur til loka tímabils. Vísir/Diego Keflavík hefur ráðið Sigurð Ingimundarson sem þjálfara karlaliðs félagsins í körfubolta. Sigurður mun stýra liðinu samhliða kvennaliði félagsins.
Keflvíkingar hafa verið í þjálfaraleit í tæpa viku eftir að Pétur Ingvarsson sagði upp störfum sem þjálfari karlaliðsins í byrjun vikunnar. Pavel Ermolinskij var meðal annars orðaður við starfið en Vísir greindi frá því fyrr í vikunni að það kæmi til greina að Sigurður myndi taka við karlaliðinu samhliða kvennaliðinu. Það hefur nú verið staðfest og greina Víkurfréttir frá. Jón Halldór Eðvaldsson, kemur inn í þjálfarateymi kvennaliðsins með Sigurði, og þá verður Magnús Þór Gunnarsson áfram aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Keflavík tapaði fyrsta leik eftir fráhvarf Péturs á fimmtudaginn var, 90-81 fyrir ÍR á heimavelli. Gengi Keflvíkinga hefur verið undir væntingum en gríðarmikið hefur verið lagt í leikmannahóp liðsins. Tveir nýir erlendir leikmenn komu undir lok leikmannagluggans og hafa nú tveir vikið. Þeir Jarell Reischel og Marek Dolezaj eru á heimleið og hafa yfirgefið Keflavíkurliðið. Erlendum leikmönnum liðsins fækkar því úr átta í sex. Fyrsti leikur Keflavíkur undir stjórn Sigurðar verður á fimmtudaginn kemur. Keflvíkingar sækja Hauka heim í Ólafssal en Haukar sitja á botni deildarinnar. Keflavík er í 10. sæti með 14 stig, tveimur stigum frá sæti í úrslitakeppninni. Keflavík hefur ekki misst af sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins síðan árið 1985.
Keflavík ÍF Bónus-deild karla Körfubolti Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Víkingur R. - Keflavík | Er aftur Evrópuþynnka? Íslenski boltinn Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Sjá meira