Víða allhvasst og éljagangur Atli Ísleifsson skrifar 4. febrúar 2025 07:14 Það mun bæta heldur í vind í kvöld og má sömuleiðis reikna með vægu frosti í dag. Vísir/Vilhelm Lægðin sem olli vestanstormi í gærkvöldi á norðanverðu landinu fjarlægist nú landið, en lægð í myndun á Grænlandssundi stýrir veðrinu í dag. Áttin verður suðvestlæg, víða strekkingur eða allhvass vindur og éljagangur, en yfirleitt úrkomulítið norðaustantil.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Það mun svo bæta heldur í vind í kvöld og má sömuleiðis reikna með vægu frosti í dag. Gular viðvaranir tóku gildi á Suðurlandi og Faxaflóa frá miðnætti og verða í gildi á fyrrnefnda svæðinu til klukkan níu en fram til hádegis á því síðarnefnda. Búist er við að élin verði dimm og að þeim fylgi lélegt skyggni og slæm akstursskilyrði. Veðrinu slotar svo um tíma en gular viðvaranir taka gildi á sama svæði í kvöld og standa fram til hádegis á morgun þegar bætir jafnvel í hríðina. Um miðjan dag á morgun hefur síðan verið gefin út gul viðvörun fyrir gjörvallt landið þar sem spáð er sunnan illviðri sem á að vara fram á miðjan dag á fimmtudag. Þá spáir veðurstofan tuttugu til þrjátíu metrum á sekúndu, stormi, roki eða ofsaveðri. Það verður hinsvegar hlýtt um allt land og rigning, talsverð eða mikil á sunnan- og vestanverðu landinu. Útlitið er metið á þann veg að raskanir á samgöngum séu líklegar og útlit fyrir vatnavexti víða. Þá eru einnig taldar líkur á staðbundnu foktjóni og er fólk hvatt til að huga vel að lausamunum. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 13-20 m/s og él, en að mestu bjart norðaustanlands. Hiti í kringum frostmark. Hvessir seinnipartinn og hlýnar með rigningu, víða sunnan 20-28 um kvöldið. Á fimmtudag: Sunnan 23-30 um morguninn og talsverð rigning, en líklega hægari norðvestanlands. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast í hnjúkaþey fyrir norðan. Dregur síðan úr vindi og úrkomu, fyrst vestantil. Suðvestan 10-18 síðdegis og él. Kólnar í veðri. Á föstudag: Suðlæg átt, 8-15 og snjókoma eða él, en yfirleitt þurrt norðaustantil. Hiti um eða undir frostmarki. Á laugardag: Fremur hæg suðvestlæg átt og dálítil snjókoma eða él, en léttir til um landið austanvert síðdegis. Frost 0 til 8 stig. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir suðlæga átt og rigningu með köflum, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira