Innlent

Björgunarskipið kallað út á mesta for­gangi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þór og Lóðsinn tóku þátt í aðgerðunum.
Þór og Lóðsinn tóku þátt í aðgerðunum. Mynd/Landsbjörg

Áhöfn björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum var á fjórða tímanum kölluð út á mesta forgangi þegar nótaskipið Huginn VE55 tók niðri í innsiglingunni við Hörgárgarð gegnt Skansinum. Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að skipið hafði misst vélarafl á leið inn innsiglinguna með þessum afleiðingum.

Auk Þórs tók Lóðsinn í Eyjum þátt í aðgerðum í dag.

„Komið var taug aftur úr Huginn í Lóðsinn sem togaði í hann á meðan Þór lagðist með stefnið á síðu Hugins aftarlega til að ýta á hann til að snúa skipinu. Þessar aðgerðir gengu fljótt og vel og losnaði Huginn fljótlega. Lóðsinn dró svo skipið að bryggju,“ segir í tilkynningu Landsbjargar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×