Innlent

„Við ætlumst til að fólk finni lausnir og leysi deiluna“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Hildur Jóna Friðriksdóttir foreldri í foreldrafélagi Árbæjarskóla undrast kyrrstöðu í kjaradeilu kennara síðustu vikur.
Hildur Jóna Friðriksdóttir foreldri í foreldrafélagi Árbæjarskóla undrast kyrrstöðu í kjaradeilu kennara síðustu vikur. Vísir/Stefán

Ríkissáttasemjari býst við að boðað verði til fundar á morgun í kjaradeilu kennara. Verkföll hefjast í ríflega tuttugu leik- og grunnskólum eftir helgi takist ekki að semja. Foreldri undrast aðgerðarleysi í deilunni síðustu vikur og óttast verkföll.

Kennaraverkföll hefjast að óbreyttu um mánaðamótin. Verkföllin verða ótímabundin í fjórtán leikskólum og tímabundin í sjö grunnskólum. Foreldrar hafa efast um lögmæti aðgerðanna. Aðalmeðferð í máli foreldra leikskólabarna gegn Kennarasambandinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá ríkissáttasemjara er búist við að fundur í kjaradeilunni verði boðaður á morgun en síðasti fundur í kjaradeilunni fór fram fyrir viku.

Undrast kyrrstöðuna 

Hildur Jóna Friðriksdóttir foreldri í foreldrafélagi Árbæjarskóla undrast kyrrstöðu í deilunni síðustu vikur.

„Þeir sem eru aðilar að þessum kjaraviðræðum þurfa að finna lausnir. Það þarf að leysa þessa kjaradeilu. Foreldrar eru ekki aðilar að þessari deilu en við og börnin verðum fyrir aðgerðunum. Við ætlumst til að fólk finni lausnir og leysi deiluna,“ segir Hildur. 

Verkfallsaðgerðir kennara stóðu yfir í viku í Árbæjarskóla á síðasta ári. Hildur segir verkfallið hafa haft veruleg áhrif.

„Þegar fyrsta verkfallið kom hjá okkur var eins menn væru ekki búnir að ákveða hvernig þeir ætluðu að ræða saman. Að verkfalli loknu fundum við fyrir því að það var töluvert átak fyrir mörg börn að byrja aftur,“ segir Hildur.

Mögulega næstum enginn skóli í febrúar

Takist ekki að semja hefst kennaraverkfall í Árbæjarskóla á mánudaginn. Hildur hefur áhyggjur af lengd verkfallsins. 

„Verkfallsaðgerðirnar hafa verið boðaðar í þrjár vikur. Eftir það hefst vetrarfrí í Reykjavík. Þannig að ef að verkfallinu verður og það heldur út allan tímann þá ná börnin okkar þremur virkum dögum í febrúar. Ég hafði vonast til þess að fólk gæti náð saman allan þann tíma sem hlé hefur staðið. Svona stórt skarð á miðjum vetri er náttúrulega erfitt,“ segir Hildur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×