Innlent

Prófa rýmingar­flautur í Grinda­vík í dag

Lovísa Arnardóttir skrifar
Grindavík opnaði á síðasta ári eftir að hafa verið lokuð mánuðum saman. Hundruð hafa selt heimili sín og flutt en einhverjir halda enn til þar. Hættuleg svæði eru girt af.
Grindavík opnaði á síðasta ári eftir að hafa verið lokuð mánuðum saman. Hundruð hafa selt heimili sín og flutt en einhverjir halda enn til þar. Hættuleg svæði eru girt af. Vísir/Vilhelm

Klukkan 11 í dag mun Lögreglan á Suðurnesjum prófa rýmingarflautur í Grindavík og Svartsengi. Í tilkynningu kemur fram að þetta sé gert til að prófa virkni fjarræsibúnaðar og handræsibúnaðar sem settur hefur verið við flauturnar og til að tryggja virkni búnaðar.

„Þetta er alltaf gert fyrsta fimmtudaginn hvers mánaðar. Til að athuga hvort að búnaðurinn virkar,“ segir Sigvaldi Lárusson varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum.

Hann segir þetta hefðbundið verklag. Ekkert bendi til þess að búnaðurinn virki ekki. Hann telur að rýmingarflauturnar muni flauta í um eina mínútu.

Hann segir töluvert af fólki í bænum og síðustu vikur hafi að jafnaði verið gist í 35 til 45 húsum. Það hafi verið gist í um 32 húsum í nótt.

„Þetta er alltaf svipað, fjöldinn,“ segir hann að lokum.

Nýtt hættumat væntanlegt

Síðasta eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni lauk þann 9. desember. Það varði í 18 daga. Nokkuð rólegt hefur verið á svæðinu en enn er þó áframhaldandi kvikusöfnun við Svartsengi. Í síðustu tilkynningu veðurstofunnar kom fram að líkur á kvikuhlaupi aukist eftir nokkrar vikur haldi kvikusöfnun áfram á sama hraða. Tilkynningin var gefin út þann 19. desember. 

Síðasta hættumat sem gefið var út af Veðurstofunni. Það rennur út í dag.Veðurstofan

Hættumatið sem fylgir gildir þar til í dag. Þar er enn talin nokkur hætta að vera í Grindavík vegna mögulegs jarðfalls ofan í sprungu en í Bláa lóninu og Svartsengi er hætta metin lítil eða mjög lítil




Fleiri fréttir

Sjá meira


×