Töpuðu fyrir Napoli með minnsta mun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. desember 2024 15:53 Mikael Egill Ellertsson í baráttu við Stanislav Lobotka. getty/Giuseppe Maffia Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Venezia sem laut í lægra haldi fyrir Napoli, 1-0, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Með sigrinum komst Napoli upp að hlið Atalanta á toppi deildarinnar. Bæði lið eru með 41 stig en markatala Atalanta eru talsvert betri og liðið verður því á toppnum þegar nýja árið gengur í garð. Mikael Egill og félagar áttu undir högg að sækja í leiknum í dag en héldu samt markalausri stöðu fram á 79. mínútu. Þá skoraði Giacomo Raspadori eina mark leiksins. Romelu Lukaku fékk kjörið tækifæri til að koma Napoli yfir í fyrri hálfleik en Filip Stankovic, markvörður Venezia, varði vítaspyrnu hans. Mikael Egill lék fyrstu sjötíu mínúturnar fyrir Venezia. Bjarki Steinn Bjarkason sat allan tímann á varamannabekk liðsins. Venezia er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með þrettán stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Ítalski boltinn