Innlent

Fönguðu augna­blikin þegar tunglið skyggði á Mars

Kjartan Kjartansson skrifar
Samsett mynd af því þegar tunglið gekk fyrir Mars miðvikudaginn 18. desember 2024. Myndirnar tók Gísli Már Árnason, annar umsjónamanna vefsins Iceland at Night.
Samsett mynd af því þegar tunglið gekk fyrir Mars miðvikudaginn 18. desember 2024. Myndirnar tók Gísli Már Árnason, annar umsjónamanna vefsins Iceland at Night. Gísli Már Árnason/Iceland at Night

Svonefndur stjörnumyrkvi varð þegar tunglið gekk fyrir Mars á miðvikudagsmorgun. Áhugastjörnuljósmyndari náði mynd af myrkvanum frá Kópavogi. Annað tækifæri til að berja sjónarspilið augum gefst strax í febrúar.

Myrkvar af þessu tagi sjást aðeins frá afmörkuðu svæði á jörðinni. Síðast gekk tunglið fyrir Mars frá Íslandi séð 5. desember árið 2020, að því er Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari, skrifar á vefsíðunni Iceland at Night. Gísli Már Árnason, kollegi hans og hinn umsjónarmaður vefsins, náði meðfylgjandi mynd af myrkvanum úr Kópavogi á miðvikudagsmorgun.

Tunglið gengur aftur fyrir Mars frá Íslandi séð að kvöldi 9. febrúar. Sá myrkvi hefst klukkan 18:30 og lýkur honum klukkan 19:28.

Þrátt fyrir að Mars verði á lofti allar myrkurstundir um miðjan janúar, í svonefndri gagnstöðu, er þetta ekki heppilegur tími til þess að skoða rauðu reikistjörnuna. Svo vill nefnilega til að reikistjarnan er núna fjarri jörðinni í sólkerfinu og því lítil að sjá í áhugamannasjónaukum.

Aðstæður verða ákjósanlegri í september 2035 en þá verður Mars næst jörðu, um 56,9 milljón kílómetra í burtu, um tvöfalt nær en hún er nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×