Lífið samstarf

Hinn eini sanni konungur mættur í bíó

Sambíóin
Leikarinn Þorvaldur Davíð lét sig ekki vanta á frumsýningu Múfasa en hann hefur tvisvar ljáð Simba rödd sína í íslenskri talsetningu tveggja Lion King mynda. 
Leikarinn Þorvaldur Davíð lét sig ekki vanta á frumsýningu Múfasa en hann hefur tvisvar ljáð Simba rödd sína í íslenskri talsetningu tveggja Lion King mynda. 

Það var mikið um dýrðir á frumsýningu Sambíóanna og Bylgjunnar á nýjust kvikmynd Disney, Múfasa: konungur ljónanna.

Hópur Bylgjuhlustenda ásamt leikurum mætti til að upplifa söguna um hins eina sanna konungs á sunnudaginn var í Sambíóunum Kringlunni.

Ljónsunginn Múfasa er einn og týndur á gresjunni. Hann hittir annan viðkunnalegan ljónsunga, Taka, sem er af konungsættum. Þessi kynni setja af stað víðattumikið ferðalag ólíkra vina í leit að örlögum sínum.

Elsta dóttir Beyoncé og Jay-Z þreytir frumraun sína í kvikmyndum með því að ljá rödd sína Kiöru, dóttur Simbu og Nölu, sem er túlkuð af heimsfrægri móður sinni. Myndin er tileinkuð James Earl Jones sem lék Múfasa frá árunum 1994 til 2019 en hann lést 93 ára að aldri þann 9. September.

Leikarahópurinn sem kemur að íslensku talsetningunni.



Þessi eru meðal helstu leikara sem ljá rödd sína í myndinni

Múfasa: Gunnar Hrafn Kristjánsson

Taka: Jónmundur Grétarsson

Sarabía: Íris Tanja Flygering

Rafíkí: Guðmundur Ólafsson

Kíros: Magnús Jónsson

Púmba: Hannes Óli Ágústsson

Tímon: Ævar Þór Benediktsson

Simbi: Þorvaldur Davíð Halldórsson

Nala: Íris Hólm Jónsdóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.