Lífið

„Það besta, versta og skrýtnasta á árinu“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björn verður með Kviss ársins þann 28.desember.
Björn verður með Kviss ársins þann 28.desember.

Björn Bragi Arnarsson ræðir hér við Sindra Sindrason um veturinn í Kviss í Íslandi í dag. Fram varð Íslandsmeistari í Kviss á dögunum eftir magnaða úrslitaviðureign gegn Val.

En næsti Kviss þáttur fer í loftið strax á milli jóla og nýárs. Áramóta Kvissið þar sem árið verður gert upp á skemmtilegan hátt.

„Það má segja að þetta verði það besta, versta og skrýtnasta á árinu,“ segir Björn Bragi.

En aftur að Kviss þáttunum.

„Þetta var fimmta serían af Kviss og sú stærsta hingað til. Mesta áhorfið og algjör draumasería,“ segir Björn en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.

Klippa: Ísland í dag - „Það besta, versta og skrýtnasta á árinu“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.