Viðskipti innlent

Ari og Ágúst til Reita

Atli Ísleifsson skrifar
Ari Þorleifsson og Ágúst Hilmarsson.
Ari Þorleifsson og Ágúst Hilmarsson.

Reitir fasteignafélag hefur ráðið tvo sérfræðinga til starfa, Ágúst Hilmarsson sem sérfræðing í greiningum á fjárfestingareignum og Ara Þorleifsson sem verkefnastjóra framkvæmda.

Í tilkynningu segir að ráðningarnar séu liður í vegferð Reita um eflingu félagsins með fjárfestingu í atvinnuhúsnæði og uppbyggingar eignasafnsins.

„Ari Þorleifsson – Verkefnastjóri framkvæmda

Ari bætist við framkvæmdasvið Reita, þar sem hann mun stýra stærri framkvæmdaverkefnum. Hann er með B.Sc. gráðu í byggingafræði frá Háskólanum í Reykjavík, meistararéttindi í húsasmíði og byggingastjóraréttindi. Ari hefur víðtæka reynslu af verkefnastjórnun og hönnun innan byggingageirans, meðal annars frá störfum sínum hjá Arkís og Basalt arkitektum þar sem hann kom að verkefnum eins og Nýja Landspítalanum, Baðstöðvum Bláa Lónsins og Fjallahóteli Kerlingafjalla.

Sem verkefnastjóri framkvæmda hjá Reitum leiðir Ari umbreytingarverkefni en slík verkefni eru mynda mikilvægan vaxtarstólpa hjá félaginu.

Ágúst Hilmarsson – Sérfræðingur í greiningum á fjárfestingareignum

Ágúst kemur til Reita frá ráðgjafarsviði KPMG þar sem hann sérhæfði sig í verðmötum, aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja og arðsemisgreiningum á fjárfestingatækifærum. Hann er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur hlotið víðtæka reynslu á sviði fjármála- og arðsemisgreininga. Sem sérfræðingur í greiningum á fjárfestingareignum sinnir Ágúst lykilhlutverki innan fjárfestingasviðs Reita, sem meðal annars felur í sér greiningu á virðisforsendum fjárfestingareigna, gerð virðismats og þátttöku í samningaviðræðum um kaup og sölu fjárfestingareigna,“ segir í tilkynningunni. 

Um Reiti segir að sélagið sé leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×