Þrenningin á skotskónum og Real slapp heim með öll stigin

Jude Bellingham fagnar marki sínu með Arda Guler í sigri Real Madrid í kvöld.
Jude Bellingham fagnar marki sínu með Arda Guler í sigri Real Madrid í kvöld. Getty/Eric Alonso

Evrópumeistarar Real Madrid unnu lífsnauðsynlegan 3-2 útisigur á Atalanta í Meistaradeildinni í kvöld.

Real Madrid þurfti nauðsynlega á stigum að halda enda hefur gengið illa í Meistaradeildinni að undanförnu.

Þessi sigur skilar liðinu upp í átjánda sæti en liðið er níu stigum á eftir toppliði Liverpool.

Kylian Mbappé kom Real í 1-0 strax á tíundu mínútu með frábærri afgreiðslu eftir stoðsendingu frá Brahim Diaz.

Þetta leit því út fyrir að ætla að verða gott kvöld fyrir Mbappé en hann fór síðan meiddur af velli á 36. mínútu.

Charles De Ketelaere jafnaði fyrir Atalanta úr vítaspyrnu í uppbótatíma fyrri hálfleiks.

Real menn byrjuðu hins vegar seinni hálfleikinn vel og skoruðu tvö mörk á fjögurra mínútna kafla.

Vinicius Junior skoraði fyrra markið á 56. mínútu og lagði upp hitt fyrir Jude Bellingham á 59. mínútu.

Heimamenn í Atalanta voru ekki búnir að gefast upp og Ademola Lookman minnkaði muninn á 65. mínútu.

Real tókst hins vegar að landa sigrinum og koma sér í mun betri mál í Meistaradeildinni. Það mátti samt ekki muna miklu að jöfnunarmarkið kæmi á síðustu sekúndum leiksins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira