Einbeitingin var rosaleg í upphafi leiks. Ísland var að mæta ekkert eðlilega stóru og sterku liði. Það var eins og körfuboltalandslið Úkraínu væri mætt.
Elín Jóna átti mikið í góðri byrjun þar sem hún varði fyrstu fimm skotin sem hún fékk á sig. Þær úkraínsku voru orðnar svo hræddar að þær bombuðu hátt yfir úr fyrsta vítakastinu.
Stelpurnar leystu vel að spila sex gegn sjö sóknarmönnum, þar sem Úkraína spilaði með tvo turna á línunni. Staðan úr 4-3 í 8-3 fyrir Ísland og liðinu gekk vel að keyra upp hraðann.
Staðan 16-9 í hálfleik, sjö mörk úr hraðaupphlaupum, Elín Jóna með 60 prósent, já – 60 prósent markvörslu.
Ísland líka með átta löglegar stöðvanir í fyrri hálfleik, meira en allan leikinn við Holland. Úkraína neyddist í níu tapaða bolta. Vörn, sókn, markvarsla – allt var að smella.
Stelpurnar gerðu þetta full spennandi eftir hléið. Það dró aðeins úr hraðaupphlaupsmörkum Íslands og úkraínska liðið vann sig inn í leikinn. Alltaf þegar þær virtust ætla að skapa alvöru spennu kom hins vegar mark eða góð markvarsla og Hafdís Renötudóttir átti nokkrar góðar í seinni hálfleik.
Vörnin á mikið hrós skilið fyrir að hafa tekist sex, eða jafnvel fimm, á við sjö úkraínska turna í gott sem 50 mínútur. Berglind frábær fyrir framan í 5-1 vörninni og naut sín vel, Thea með mörg stopp og heilt yfir frábær liðsframmistaða á alla kanta.
Perlu Ruth leið ekkert frábærlega á bekknum undir lok leiks og kom smá stress. Maður fann það einnig en karakterinn og liðsheildin skilaði þessu yfir línuna.
Díana Dögg á sérstaklega hrós skilið fyrir frábæra innkomu. Hún kom inn af fítonskrafti þegar aðrar voru ragari í sókninni.
Þetta er sögulegt. Þetta er stórt. Eftir sjö leiki og sjö töp á Evrópumóti er fyrsti sigurinn á EM staðreynd. Stuðningurinn geggjaður úr stúkunni og yndisleg stund eftir leik þegar stelpurnar fögnuðu með sínu fólki, sem þær gleyma eflaust seint.
Haldið verður upp á sigurinn í kvöld en á morgun fara okkar konur að einblína á Þjóðverja. Gríðarsterkt lið sem sýndi sig gegn bæði Úkraínu og Hollandi fyrr í kvöld. En það er með mikla pressu á herðunum.
Með þessar stelpur okkar í framlínunni er allt hægt og ég efast ekki um að stefnan sé sett á milliriðil í Vínarborg.