Veður

Við­varanir komnar í gildi og orðið ó­fært sums staðar

Kjartan Kjartansson skrifar
Hætta er á að færð spillist víða á landinu í dag. Myndin er úr safni.
Hætta er á að færð spillist víða á landinu í dag. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Suðausturlandi og Austurlandi fyrir klukkan átta í morgun vegna norðaustan og norðan hríðar með snjókomu og skafrenningi. Veður versnar á norðanverðu landinu með deginum en þar taka viðvaranir gildi klukkan þrjú.

Töluverður viðbúnaður er vegna mögulegra áhrifa veðursins á framkvæmd alþingiskosninganna sem fara fram í dag. Jafnvel er sagt koma til greina að fresta kjörfundi ef kjósendur komast ekki á kjörstaði vegna ófærðar en það tefði talningu atkvæða á öllu landinu.

Versta veðrinu er spáð á Suðausturlandi eftir klukkan fjögur í dag en þá er varað við norðan hvassviðri eða stormi. Fram að því er viðvörunin þar vegna hríðar likt og á Austurlandi, Norðurlandi eystra og vestra og Ströndum.

Viðvaranirnar falla úr gildi klukkan tvö í nótt á norðanverðu landinu en fyrir austan og suðaustan á veðrinu ekki að slota fyrr en á sunnudagsmorgun eða í hádeginu á sunnudag.

Þungfært er á Mýrdalssandi og ófært í Suðursveit og Breiðamerkursandi samkvæmt vef Vegagerðarinnar.

Á Austurlandi er ófært á milli Fáskrúðsfjarðar og Djúpavogs annars vegar og á milli Hvalness og Hafnar hins vegar en mokstur er sagður standa yfir. Þá er þungfært í Jökulsárhlíð og snjóþekja á Fjarðarheiði.

Á Norðausturlandi er snjóþekja eða hálka á flestum leiðum. Vegurinn um Möðrudalsöræfi er á óvissustigi vegna veðurs en reynt verður að halda úti hefðbundnum mokstri þar og sömu sögu er að segja af Vopnafjarðarheiði. 

Þá er þungfært á Siglufjarðarvegi í Almenningum.


Tengdar fréttir

„Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“

Veðrið getur haft áhrif á framkvæmd Alþingiskosninganna á morgun. Gular veðurviðarnarnir verða í gildi frá því í kvöld þar til á sunnudaginn á Austfjörðum. Formaður yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi segir að allt kapp verði lagt á að halda kjörfundi allstaðar. Ekki má telja atkvæði fyrr en öllum kjörfundum hefur verið lokað.

Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði

Hátt í fjörutíu þúsund manns hafa greitt atkvæði utankjörfundar fyrir komandi Alþingiskosningar. Þátttakan hefur verið töluvert meiri á landsbyggðinni. Á Austurlandi greiddu helmingi fleiri atkvæði í morgun en á öðrum svæðum. Sýslumaður þar segir ljóst að slæm veðurspá á kjördag sé að hafa áhrif.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×