Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Kristján Már Unnarsson skrifar 28. nóvember 2024 22:42 Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq-málmvinnslufélagsins, í viðtali við Stöð 2 við vinnubúðir gullvinnslunnar á Grænlandi. Baldur Kristjánsson Fyrsta gullið úr grænlenskri gullnámu, sem Íslendingar standa fyrir, er komið úr gullkvörninni. Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq, segir þetta ólýsanlega tilfinningu eftir tíu ára undirbúningsstarf.
Í fréttum Stöðvar 2 var gullnáman Nalunaq á Suður-Grænlandi heimsótt. Tíu ár eru frá því félag undir forystu ungs íslensks jarðfræðings, Elds Ólafssonar frá Torfastöðum í Biskupstungum, keypti gullnámu í fjallendi inn af bænum Nanortalik. Þar hefur Amaroq gert höfn, vegi, brýr og vinnubúðir þar sem nærri eitthundrað manns starfa núna við gullgröft og gullvinnslu. Gullmolarnir myndaðir á pönnunni.KMU „Núna höfum við sýnt fram á að við getum byggt námu, fundið og byggt námu frá A til Ö, eytt tvöhundruð milljónum dollara í að gera það. Sýnt fram á að við höfum þekkingu og getu til að vinna með samfélaginu og stjórnvöldum,“ segir Eldur, sem er stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals. Eldur áætlar að íslenskt eignarhald í félaginu sé núna á milli þrjátíu og fjörutíu prósent. Auk Íslendinga hafi alþjóðlegir fjárfestar fylgt félaginu frá byrjun. Gullkvörnin reis á aðeins tíu mánuðum.KMU Inni í fjallinu er búið að grafa tuttugu kílómetra af göngum og þar sýnir Eldur okkur um hvað þetta snýst. „Óó, váá. Shit,“ segir einhver og bendir á svera jarðmyndun í lofti gangannaa. „Sjáðu þetta!“ segir Eldur. Eldur bendir á svera gullæð í gullnámunni.KMU -Þannig að þetta er gullæðin hérna? „Þetta er gullæðin, já,“ svarar hann og slær á verðmætið bara úr þessu eina stykki: „Það eru svona 450 únsur. Sem eru svona 150 milljónir.“ -Íslenskra króna? „Já. Bara tíu sinnum tíu metrar hérna.“ Klappað fyrir fyrstu gullstöngunum.Baldur Kristjánsson Eftir að búið er að bora og sprengja er mulningum ekið út úr námunni áleiðis í sjálfa gullvinnsluna. Stærsta húsið sem risið er á námasvæðinu er í raun gullkvörn og það í bókstaflegri merkingu. Gullkvörnin reis á aðeins tíu mánuðum og var gangsett í fyrradag. Þar malast efnið í tromlu og fer síðan á vatnspönnu sem skolar gullið frá sandinum, rétt eins og menn gerðu í Klondyke í gamla daga. Eldur sýnir dæmi um hvað gullmolarnir úr námunni geta verið stórir.Baldur Kristjánsson „Þetta hérna eru fyrstu gullhnullungarnir sem koma úr vinnslufasanum. Þetta fyrirfinnst hvergi lengur í heimum svona stórt nema hérna í Grænlandi, af því að við erum að byrja,“ segir Eldur. Eldur Ólafsson í viðtali undir fögrum fjallatindum Grænlands.Baldur Kristjánsson Hann segir það taka allt næsta ár að koma vinnslunni á fullt og ná þeim tekjum sem að er stefnt, sem eru um 130 milljónir dollara á ári. Þetta þýðir 50 milljóna íslenska króna virði gulls á degi hverjum og skýrir peningaskápinn á staðnum. Gullið brætt í gullstangir.Baldur Kristjánsson En stærsta stundin var að sjá gullið steypt í mót en Eldur vonast til að fá þrjár til fjórar gullstangir annan til þriðja hvern dag. „Það er bara ólýsanleg tilfinning í gær þegar ég sá gullstrauminn vera að koma á borðinu. Þá hélt ég að mér myndi nú ekki líða svona vel eins og mér leið.“ Starfsmenn fagna fyrsta gullinu.KMU „En svo tekur við að reka félagið og halda áfram að halda þessu alltaf við. En það var ólýsanleg tilfinning, - eftir tíu ár,“ segir Eldur. Og starfsmenn fögnuðu, eins og sjá má hér í frétt Stöðvar 2:
Grænland Amaroq Minerals Tengdar fréttir Steyptu fyrsta gullmolann Íslenska námafyrirtækið Amaroq hefur tilkynnt að fyrsta framleiðsla og steypun á gulli hafi átt sér stað í Nalunaq gullnámu félagsins í Suður-Grænlandi. 28. nóvember 2024 09:55 Hlutabréfaverð Amaroq nálgast hæsta gildi eftir að gullvinnsla hófst í Nalunaq Auðlindafyrirtækið Amaroq Minerals, sem er að meirihluta í eigu íslenskra fjárfesta, hefur tilkynnt um að fyrsta framleiðsla og steypun á gulli hefur átt sér stað í Nalunaq-námu félagsins í Suður-Grænlandi. Fjárfestar brugðust vel við tíðindunum, sem eru í samræmi við útgefnar áætlanir félagsins, og hlutabréfaverðið hækkaði nokkuð í fyrstu viðskiptum í morgun. 28. nóvember 2024 09:47 Mest lesið Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent „Talandi um að skila ekki til samfélagsins“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Innlent Fjölmenn lögregluaðgerð á Ísafirði Innlent „Er ekki hægt að hafa sér þátt fyrir hann?“ Innlent „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Ósennilegar skýringar á því hvernig DNA endaði á kynfærum Innlent Svona voru kappræður flokksleiðtoganna Innlent Fleiri fréttir „Talandi um að skila ekki til samfélagsins“ Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ „Er ekki hægt að hafa sér þátt fyrir hann?“ Fjölmenn lögregluaðgerð á Ísafirði „Leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn“ Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Óvenjumikil aðsókn vegna veðurs Rýnt í fylgið á lokasprettinum og mögnuð heimsókn í íslenska gullnámu Ósennilegar skýringar á því hvernig DNA endaði á kynfærum „Ég mun deyja á þessari hæð“ Ákærður fyrir morð og tvær tilraunir til manndráps Ekki rétt að nefndin hafi boðað aukafund til að hækka vexti Sýkna Þórðar Más og Sólveigar Guðrúnar í milljarðamáli staðfest Auka alþjóðasamvinnu í ljósi vaxandi spennu Óvenjulegt að bóluefni séu skráð sem dánarorsök Opnunin á Blönduhlíð var engin opnun Steypan smám saman að harðna í fylginu Svona voru kappræður flokksleiðtoganna Lykilatriði að almenningur fái upplýsingar um kennaradeiluna Bein útsending: Fundað um forvarnir gegn ofbeldi meðal barna Glæný könnun Maskínu: Fylgi Framsóknar og Flokks fólksins á uppleið Glæný könnun í hádegisfréttum Bylgjunnar Þau eru tilnefnd sem Framúrskarandi ungur Íslendingur 2024 Tæknilegir örðugleikar en ekki netárás á mbl.is Segir það mjög góða tilfinningu að skrifa undir nýjan kjarasamning Erfitt að útskýra fyrir þriggja ára að það verði ekkert af afmæli í leikskólanum Bein útsending: Heilbrigðisþing – Heilsugæslan, svo miklu meira… Kostuleg kosningabarátta: Óvæntar uppákomur og skrautlegir skandalar Sjá meira
Steyptu fyrsta gullmolann Íslenska námafyrirtækið Amaroq hefur tilkynnt að fyrsta framleiðsla og steypun á gulli hafi átt sér stað í Nalunaq gullnámu félagsins í Suður-Grænlandi. 28. nóvember 2024 09:55
Hlutabréfaverð Amaroq nálgast hæsta gildi eftir að gullvinnsla hófst í Nalunaq Auðlindafyrirtækið Amaroq Minerals, sem er að meirihluta í eigu íslenskra fjárfesta, hefur tilkynnt um að fyrsta framleiðsla og steypun á gulli hefur átt sér stað í Nalunaq-námu félagsins í Suður-Grænlandi. Fjárfestar brugðust vel við tíðindunum, sem eru í samræmi við útgefnar áætlanir félagsins, og hlutabréfaverðið hækkaði nokkuð í fyrstu viðskiptum í morgun. 28. nóvember 2024 09:47