Bíó og sjónvarp

Barry Keoghan leikur Bítil

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Kvikmyndirnar eiga allar að koma út árið 2027.
Kvikmyndirnar eiga allar að koma út árið 2027. Vísir/Samsett

Stórleikarinn írski Barry Keoghan mun leika trommarann fræga Ringo Starr í ævisögulegri kvikmyndaröð Sam Mendes um ævi og störf Bítlanna. Stefnt er að því að hver Bítill fái sína mynd.

Það er Ringo sjálfur sem greinir frá þessu í viðtali við bandaríska miðilinn Entertainment Tonight.

„Mér finnst það frábært. Ég held að hann sé einhvers staðar á trommuæfingum og ég vona að þær verði ekki of margar,“ segir Bítillinn.

Greint hefur verið frá því að leikstjórinn Sam Mendes, sem er frægur fyrir að hafa leikstýrt kvikmyndum á borð við American Beauty og 1917, stefni að því að gefa út ævisögulega kvikmynd um hvern Bítil fyrir sig.

Ekkert hefur verið staðfest hingað til um hver eigi að leika þessa frægustu rokkara tónlistarsögunnar. Margir orðrómar hafa þó gengið um hverjir það verði sem hreppi þessi eftirsóttu hlutverk. Paul Mescal, sem lék nýlega aðalhlutverkið í framhaldi Ripley Scott á Skylmingarþrælnum, hefur til að mynda verið orðaður við hlutverk sjálfs Paul McCartney.

Þá hefur Harris Dickinson, sem fór til dæmis með aðalhlutverkið í Sorgarþríhyrningnum, verið bendlaður við hlutverk John Lennon en hvorugur þeirra hefur staðfest það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.